Fimmtudagur, 09. maí 2002
Árni Johnsen brást ekki aðdáendum sínum fremur en endranær í Kastljósinu og Íslandi í dag. Eyjabelgingurinn síður en svo rokinn úr honum þó hann sé orðinn svoldið grár og gugginn eftir atganginn síðustu 10 mánuði. En lætin hafa víst, samkvæmt söguskýringum Árna, verið lítið annað en móðursýki fjölmiðla og skúbbgraðra hlandpressumanna. Ótrúlegt að öll þessi móðursýki og rætið slúðrið skuli ekki hafa verið leiðrétt í hinni löngu og tímafreku lögreglurannsókn. En það er svo sem allt í lagi þar sem Árni mun hreinsa sig af þessu öllu fyrir dómi. Fat chance!
Árni slapp bærilega frá Íslandi í dag og tókst næstum að gera sig að píslarvætti og hefur sjálfsagt náð einhverjum samúðarstigum hjá pervisnum smásálum. Eva Bergþóra og Marshalinn voru of upptekin af því að þvælast fyrir hvoru öðru til að geta saumað almennilega að honum og hrakið bullið. Ég er enn að reyna að ná því hvernig þau gátu klikkað á að bauna Moggasvikamyllunni á "mannlega þingmanninn" sem þurfti að gerast sjálftökumaður launa af því það er svo þreytandi og leiðinlegt að sækja það sem manni ber í gegnum ranghala kerfisins. Með forsendur Árna að vopni ættu kassadömur í Hagkaupum, sem hafa stungið á sig einhverjum 5000 köllum, að geta farið fram á sýknu, þar sem það vita það auðvitað allir að starf þeirra er ekki metið að verðleikum í launaumslaginu. Sjálftaka launa er héðan í frá ekkert annað en eðlileg sjálfsbjargarviðleitni. Magnað!
Það er þó hætt við að Árni hafi misst öll samúðarstigin í Kastljósinu hálftíma síðar enda voru móttökurnar þar öllu hressilegri. Hinir aumkunarverðu Innherjar á vísi.is eru þegar byrjaðir að syngja sama gamla falska sönginn sinn um að Kristján Kristjánsson og Eva María séu ekki starfi sínu vaxin. Þessir sjálfskipuðu sérfræðingar um íslenska fjölmiðlun eru flestir "cluless morons" sem væri hollast að hugsa stundum áður en þeir byrja að þenja sig.
Kristján og Eva eru hetjur kvöldsins. Þau stóðu gallhörð á sínu og spurðu réttra spurninga. Það er ekki þeim að kenna að maðurinn svari eins og fífl, enda skiptir það ekki höfuðmáli. Hann afhjúpaði sig engu að síður sem annað hvort fífl eða forhertan skúrk. Spurningarnar þeirra og taktíkin skiluðu því árangri þó þau hafi ekki barið einhverjar ægilegar játningar upp úr manngarminum með hafnarboltakylfum. Þessir innherjakverúlantar sem væru flestir best geymdir í símanum hjá Sigurði G. Tómassyni hafa sjálfsagt aldrei þurft að reyna að fá stjórnmálamenn, eða skúrka úr viðskiptalífinu, til að svara spurningum gáfulega og segja satt og rétt frá. Davíð Oddsson segir t.d. aldrei meira en hann ætlar sér að segja, alveg sama hvernig Egill Helgason, Sorri Már Skúlason, Guðrún Gunnarsdóttir, Eva eða Kristján djöflast í honum. Það stoðar því lítt að skrifa það alltaf á þáttastjórnendur þó mál séu ekki brotin til mergjar í beinni útsendingu á hverju kvöldi, enda ættu áhorfendur að hafa þann lágmarksþroska sem þarf til að greina hræsnina og bullið frá því sem máli skiptir og skilja um leið að þessir gaurar komast alltaf upp með að svara með hálfkveðnum vísum.
Kristjan og Eva voru bara alls ekki að klikka í kvöld og hröktu kallinn smekklega út í horn. Þau náðu að hleypa honum upp þannig að hann gerði sér mestan óleik sjálfur. Hann réðist að þeim með sínum margrómaða ruddaskap og hroka og í stað þess að leggjast niður fyrir honum móðguðust þau og svöruðu fullum hálsi. Það var t.d. bara snilld þegar þau ákváðu að slíta samtalinu og Eva hugðist kveðja "fórnarlambið" með þessari kvikindislegu spurningu: "Hefur þú sagt allt sem þú þarft að segja Árni?" Tónninn var háðskur og lúkkið á henni var kúl. Eva rúlar. Sérstaklega þegar hún er reið.
Samspil Kristjáns og Evu var einnig yfirvegað og smart. Þau skiptust á að koma hvoru öðru til varnar, þannig að þegar Árni byrjaði að drulla yfir Evu fyrir að vinna ekki heimavinnuna sína og hún virtist verða sorrý, kom Kristján eins og sannur töffari og brytjaði ruddan í spað. Skömmu síðar snerist dæmið við og Eva hamraði á Árna þegar Kristján bakkaði í vörn. Ég horfði einu sinni á tvo píranafiska éta gullfisk og þeir fóru eins að. Stilltu sér upp í sínu horninu hvor og skiptust á að sækja og þreyta fórnarlambið. Á rétta augnablikinu lögðust þeir svo á eitt og tættu ræfilinn í sig. Eva og Kristján voru auðvitað ekki svona vond og blóðþyrst enda hefur Árni séð um að tæta sig í sundur sjálfur, frá því mál hans komst í hámæli. Nema auðvitað að þetta sé allt fjölmiðlunum að kenna.
RÚV hefur nú þegar hafnað ásökunum Árna og stjörnublaðamaður DV, Reynir Traustason, hlýtur að gera slíkt hið sama, nema auðvitað að að fyrstu fréttir Reynis af málinu hafi allar verið byggðar á slúðri, uppspuna og lygum. Fjölmiðlar hafa þá mikið á samviskunni sé það rétt að með störfum sínum hafi þeir afvegaleitt þjóðina og embætti Ríkislögreglustjóra með þeim afleiðingum að saklaus maður missti æruna og þingsæti og stendur nú frammi fyrir 16 röngum og ósönnum ákæruatriðum og gæti þurft að dvelja í fangelsi eftir að dómsmorð verður framið á honum.
Árni sagðist í Kastljósinu rétt vera að byrja. Ballið er líka rétt að byrja og hann gæti hugsanlega reddað öðru gúrkusumarinu með heimskupörum sínum. Já og gangi Birni vel í borgini eftir að þessi skjólstæðingur hans lagði blessun sína yfir sjálftöku launa og lögbrot. Þessi forherðing og siðblinda verður væntanlega sjálfkrafa skrifuð inn í persónulýsingu hins dæmigerða sjálfstæðismanns, þó greyin séu upp til hópa ekkert verri en meðal framsóknarmaður eða aðrir kjötkatlasukkarar yfirleitt.