Föstudagur, 31. maí 2002
Fékk enn eina staðfestinguna á því að ég er illmenni í dag. Einhver jónsigurðsson11, væntanlega afkomandi Jóns Sigurðssonar, frelsishetju, sendi mér póst og skammaði mig fyrir dóminn um "Varði goes Europe" og vill meina það að ég hafi verið vondur við Varða. Ekki var það nú ætlunin, en ég er auðvitað símisskilinn. Þótti ég nú bara vera býsna góður við myndina og aðstandendur hennar og Varða ættu síst að örvænta enda er myndin að raka saman stjörnum út um allan bæ, og hún er vissulega góð þó ég hafi ekki alveg kiknað í hnjáliðunum yfir henni. En svona for the record: Þó að ég sé ungt og biturt gamalmenni þá legg ég mig fram um að vera góður við hunda, hamstra, börn og óvirkjuð landsvæði og auðvitað líka undur eins og Varða, enda væri lítið í lífið spunnið ef undur og gúrkur skreyttu ekki tilveruna. Fíla liðið samt betur á Laugaveginum en í kjallaranum eða stigaganginum hjá mér.
Var að lesa gagnrýni þína á nýju mynd um Varða.Ég þekki Varða aðeins, og allt af góðu. Það er margt verra en að vera Varði.
Ekki vildi ég vera svona týpa eins og þú, sem vílar sér ekki fyrir að reyna að vera athyglisverður og hreinskilinn en alfarið á annarra kostnað. Það er engum til gæfu að rakka meðbróður sinn niður sem persónu. Ekki held ég að þú sért merkileg manneskja. Aumingja þú.
svo mörg voru þau orð. Ég vorkenni mér líka og þakka jóni ellefta hluttekninguna.