»  off record  »  Hæ aftur, mamma og Halldór
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hæ aftur, mamma og Halldór
Fimmtudagur, 23. maí 2002

Hæ aftur, mamma og Halldór E. Mér skilst að bjánar sem bloggi séu það heitasta í dag og þeir sýrðustu fái að koma í viðtal hjá Sigurjóni og co. MAGNAÐ. Ég er lélegur bloggari. Ekkert fyndinn og lifi ekki svo spennandi lífi að ég geti gert mér mat úr því á netinu. Og svo þverbrýt ég náttúrulega reglu númer eitt í netheimum. ÞAÐ VERÐUR AÐ UPPFÆRA ALVEG ROSALEGA OFT OG REGLULEGA.

Ég er þó ekki einn um að eiga við þetta vandamál að stríða Ástþór ekki forseti Magnússon hefur hafið útgáfu á vikuriti á vefnum????? Pottur (brotinn væntanlega) eitthvað .is. Talk about contradictions in terms. Vikurit og vefurinn? Rímar bara ekki. Hlutirnir á netinu gerast strax, á sekúndufresti en ekki vikulega. Mér var að minnsta kosti sagt það þegar ég réð mig sem blaðamaður á vísi.is árið 1999 að hver einasta mínúta væri deadline. OK ég er ekki að höndla bloggið og því síður að uppfæra þennan vef regluelga. Þið sem viljið dissa mig fyrir letina ættuð að prufa að reyna að halda úti eigin vef eftir að hafa lifað á því síðustu þrjú árin að uppfæra vefi eins og vísi.is og strik.is every motherfucking day of your lives. Það verður nefnilega soldið morkið til lengdar að sitja bæði í vinnunni og heima við að skrifa mismerkilega þvælu inn á netið. (stundar fólk ekki ennþá drykkju og kynlíf?) Eini maðurinn sem ég treysti virkilega til að standast slíkan þrýsting er geðsjúklingurinn stebbifr Innherji á spjallþráðum vísis. Þessi maður/kona/mutant/klóni þreytist ekki á að skrifa heimskustu og leiðinlegustu langhunda um ágæti Sjálfstæðisflokksins. Það er fair enough, en svo þarf þetta retard líka að hafa vit og skoðanir á bíómyndum, sjónvarpsþáttum, Óskarsverðlaununum og öllum andskotanum öðrum. Láttu okkur fagmennina um þetta klepparinn þinn. Þér er svo sem frjálst að dýrka þinn Björn en í guðana bænum gerðu það í heimatilbúinni einkamekku á klósettinu heima hjá þér og blessaður vertu ekki að analísa dægurmenningu á þessum steingeldu forsendum þínum. Fer þér bara ekki. Ef þú ert ekki hálfviti þá kemurðu a.m.k. út sem slíkur í þessum vandlætingar hægrisinnaða politically correct kverúlantstóni. Bugger off.


| 0:31 |
komment

bleeeeeee hver sem þu ert veitt ekki neit um þetta en cool kv jo_bro lover

Nr. 1 | johann | 8.07.2006 | 19:52:37 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff