»  off record  »  Hollendingar eru að kjósa í
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Hollendingar eru að kjósa í
Miðvikudagur, 15. maí 2002

Hollendingar eru að kjósa í dag. Geðveikislega góð kjörsókn og mikill fílingur. Allt af því að Pim Fortuyn, umdeildur frambjóðandi, var drepinn í síðustu viku. Eins og Van Gogh, James Dean og Jim Morrison og fleiri vita er ekkert líklegra til vinsælda en að drepast og nú stefnir í að framboð Fortuyns verði með þeim stærstu í landinu. Datt í hug hvort þarna sé ekki komin framtíðarlausn fyrir stjórnmálaflokka sem vilja auka fylgi sitt og sé hér góðan möguleika fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Nú þarf Björn bara að ákveða hvort hann vilji verða píslarvotturinn sem vinnur borgina með því að láta málaliða með tékka frá Kjartani Gunnarssyni skjóta sig á færi eða hvort það sé eðlilegra að láta hina draga strá. Guðlaugur Þór, Vilhjámur Þ. og Inga Jóna eru væntanlega undanþegin. Þau eru einfaldlega ekki nógu sympatýsk. Gísli Marteinn er hins vegar dead cert og yrði örugglega öllum harmdauði með tilheyrandi fylgissveiflu.


| 23:08 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff