Föstudagur, 24. maí 2002
Sjálfstæðisgelgjuvefurinn xxxd.is fór fyrir brjóstin á hinum þrælmögnuðu og súperfemíníksu Bríetum. Mér finnst þessi vefur ekki jafn skelfilegur og þeim ágætu konum en hann er silly engu að síður. Well Bríeturnar töldu vefinn hafa þann tilgang einan að tæla (með berum brjóstum og kvennfyrirlitningu) seinþroska lið úr hópi yngstu kjósenda á kjörstað til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Ég fór auðvitað inn á þennan vef og hóf leitnina, eins og sannur rannsóknablaðamaður, að beru brjóstunum. Fann engin. Komst næst því þegar ég rakst á beibið hana Chloe í frekar flegnum topp.
Nóg um það. Það allra snjallasta við þennan vef var að hann bauð manni að panta SMS frá nokkrum útvöldum eðalgellum og þær myndu þá senda manni smáskilaboð í gsm símann á laugardaginn og minna mann á að kjósa D. Þetta er alveg hillaríus. Álíka líklegt að þær sendi SMS-ið sjálfar og að daman sem stynur fyrir mann í símasexinu sé spólgröð hörkugella, sem vilji helst slökkva á gjaldmælinum kynnast manni nánar. Fair enough. Mér finnst Chloe flott og Kolbrún Pálína reyndar líka, en þar sem ég hef hlaupið með (eða á eftir) henni 10 kílómetra upp fjall og kastað mér á eftir henni niður foss ofan í ískalt vatn, ákvað ég að velja frekar Chloe og fá SMS-ið mitt frá henni. Bara svona til að gera þessa sögu um Kollu í fossinum enn dapurlegri þá er ég ekki í topp formi eins og .is dömurnar og mæddist þess vegna á hlaupunum og missti af því að horfa á eftir henni ofan í fossinn og skjótast svo upp úr vatninu eins og Afródíta forðum. Þeir sem á horfðu urðu víst aldrei samir menn.
Jæja, hvað um það. Þegar ég hlunkaðist loksins aftur inn á þennan xxx-rated vef hlutlausra íhaldsunglinga voru allar SMS-dömurnar horfnar. Ég er alveg hundfúll. Ég ætlaði að njóta þess í botn að fá SMS frá Klónni og rjúka svo út í Hagaskóla og kjósa Ingibjörgu Sólrúnu.