Það er meiriháttar panikk í
Föstudagur, 07. júní 2002
Það er meiriháttar panikk í gangi hjá íslenskum pillusjúklingum þessa dagana eftir að það fréttist að apótekarar eiga miðlægan gagnagrunn um lyfjakaup landsmanna. Grunnurinn er ekki persónuverndaður né dulkóðaður og eitthvert nördið hjá Lyfju (örugglega Ýmir) stundar það að senda útprentanir úr grunninum á faxi til fjölmiðla. Ég hef ekkert að fela í þessum málum og upplýsi það hér með að ég ét þunglyndislyf af miklum móð og hef gert það síðastliðin tvö ár. Svo borða ég líka ofnæmistöflur og lýsistvennu og tek inn undralyfið Hvönn sem frændi minn fann upp og ku vera allra meina bót. Viagra hef ég hins vegar aldrei snert. Aldrei! Alveg sama hvað fréttatsofa RÚV kann að hafa um málið að segja.
Já, svo breytist ég líka í Mike Tyson þegar ég drekk rauðvín en það er önnur saga.