»  off record  »  Þá fer nú bögglistinn að
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Þá fer nú bögglistinn að
Föstudagur, 07. júní 2002

Þá fer nú bögglistinn að vera tæmdur. Get samt ekki drepist án þess að tala aðeins um uppáhaldstónlistarmanninn minn hann Árna Johnsen. Maðurinn virðist vera hafinn yfir lög, a.m.k.ef eitthvað er að marka verjandann hans sem byggir vörnina á því að skjólstæðingur sinn sé óvenjulegur maður sem ekki fari alltaf eftir bókinni. Alveg er ég viss um að lögmenn Tysons, O.J. Simpsons og Jeffrey Dahmers geti sagt sömu sögu af skjólstæðingum sínum. Allt óvenjulegir menn, vissulega. En glæpamenn engu að síður. Afhverju sagði hann þetta bara ekki hreint út: "Skjólstæðingur minn ber við heimsku." "Ó, gekk ég á þig? Fyrirgefðu ég hélt ég væri að bakka."Ha lamdi ég þig? Fyrirgefðu ég hélt þú værir hommi."

Minnir mig á Batman sögu sem ég á einhvers staðar. Bruce Wayne er í laganámi og kemst að því að það er munur á réttlæti og lögum. Og það er málið. Lögfræði er ekki bókmenntafræði sem er opin fyrir túlkunum. Kellingin með vogarskálarnar er með bundið fyrir augun og sér ekki neitt. (svoldið eins og Árni) og hlustar ekki á svona krapp. Annað hvort hefurðu gerst brotlegur við lög eða ekki.

Kollegi minn benti mér samt á það að það geti ekkert verið betra fyrir Árna en að lenda á Hrauninu og fá að búa til (einka)númeraplötur. Hann barðist fyrir þessu á þingi og mun örugglega fá svakalega mikið út úr því að fá að standa á "gólfinu" og framleiða númerplöturnar. Verst samt að það yrði að setja upp málmleitarhlið í vinnslusalnum, þar sem hann væri líklegur til að búa til kúl plötur eins og "BYKO", "MÚTUR", "LAUN", "SVINDL", "LYGAR", "I RULE" og fleira sem hægt væri að koma í verð á eBay.


| 1:05 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff