»  off record  »  Einn af mínum skárri kunningjum,
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Einn af mínum skárri kunningjum,
Þriðjudagur, 04. júní 2002

Einn af mínum skárri kunningjum, Halldór E., lenti alveg óvart í því nýlega að halda freðnum hasshaus uppi á pizzum í marga daga. Þeir sem þekkja Dórið hljóta að reka upp stór augu núna enda maðurinn þekktur fyrir flest annað en góðgerðir og náungakærleik. Enda sannaðist það fljótt þegar betur var að gáð að Balzac hitti naglann á höfuðið þegar hann sagði "að baki hvers góðverks liggur glæpur". Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem hann hefur rétt fyrir sér. Þessi kenning passaði eins og kartafla ofan í garð hvað Árna Johnsen og fórnfúst starf hans í þágu Þjóðleikhússins snertir og svipaða sögu er að segja af Dórinu, fyrir utan það að glæpurinn að baki pizzuveislunni var sá að hassmolinn sísvangi hafði stolið kreditkortanúmerinu hans Dóra til að kaupa 14 flatbökur og stinningarlyf frá netapóteki í Ástralíu.


Dórið rakti slóð freðýsunnar og lét það ekki aftra sér þó hann hefði þekkt hassmolann frá því að hann var lítill sykurmoli. Hann gerði málið bæði að fjölmiðlamáli og lögreglumáli. Hið hárbeitta rakvélarblað DV, sem sker á einhverri meinsemd þjóðfélagsins daglega, tók málið upp en þó með slíkum látum og flumbrugangi að pizzubakarinn sem hjálpaði Dórinu að leysa hið dularfulla mál freðna pizzuþjófsins kom út eins og höfuðpaurinn í málinu. Dóri var ekki að fíla það og sendi DV hnyttna leiðréttingu á málinu sem hefur þó enn ekki komist á prent, enda DV sjálfsagt fátt óljúfara en að leiðrétta mistök og afrugla smettinn á pizzubarónum.


Ég er hins vegar hin lágværa rödd sannleikans og birti bréf Dóra hér óbrenglað og óstytt:


Í DV þriðjudaginn 28/5 er mynd af undirrituðum í hópi tveggja lögreglumanna og fjórða aðila sem er gerður lítt þekkjanlegur. Mér þykir leitt að ásjónu fjórða mannsins var breytt enda þar á ferð hinn myndarlegasti maður og í þokkabót hetja dagsins en ekki krimmi eins og mátt hefði skilja af myndinni. Eftir að ég hafði látið lokað greiðslukorti mínu eftir að óprúttinn krakkaræfill hafði misnotað númerið mitt til að panta pítsur bæði frá Eldsmiðjunni og Hróa Hetti var það mitt næsta verk að hafa samband við þessa staði til að fá þá í lið með mér. Grípa þurfti gerpið sem hafði pantað nærri 20 pítsur á mitt kortnúmer. Fyrst hringdi ég í Hróa hött í Kópavogi og bað um yfirmann. Í símann kom maður sem hefur lært nóg í íslensku til að koma sér í vandræði, hann spurði mig með þjósti: „Ertu ekki bara svona fullur, pantar pítsur og gleymir því svo?“ Ég fann strax að gáfulegra var að tala við einfrumung svo ég kvaddi hann með þeim orðum að þetta væri eitt skemmtilegasta „komment“ sem ég hefði heyrt lengi og þetta væri lína sem yrði að komast á prent. Hann sagðist hlakka til að sjá þetta á prenti og nú verður honum að þeirri ósk. Næsta skref var að hringja í Eldsmiðjuna. Þar varð Þorleifur Jónsson fyrir svörum en hann rekur Eldsmiðjuna af myndarbrag og tekur greinilega á þeim málum sem upp koma því hann fór beint í það að aðvara starfsfólk sitt og voru allir á verði ef reynt yrði að nota umrætt kortnúmer. Klukkutíma seinna gerðist einmitt það og var mannvitsbrekkan með kortnúmer mitt tilkynnt til lögreglu samstundis. Myndin af undirrituðum ásamt Þorleifi Jónssyni og tveimur vöskum laganna vörðum sem tekin var við þetta tækifæri ætti því að birtast aftur á síðum DV og væri nær lagi að skella lárviðarkransi um höfuð Þorleifs en að hylja það.


Svo mörg voru þau orð. Góðar stundir.


| 0:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff