Miðvikudagur, 27. nóvember 2002
Það kom enginn skemmtilegur að bögga mig í dag þannig að ég klára bara Pat Fear. Hann rak augun í mynd af hvasseygum Hallgrími Helgasyni, á gólfinu á ritstjórnini, og varð hálf skelkaður. (Seigur Hallgrímur hræðir gamla pönkpoppara með svart/hvítu augnaráðinu).
Fékk að heyra að maðurinn væri ekki bara myndlistarmaður heldur líka svaka rithöfundur. Frægur? Jamm og meira að segja illa liðinn hjá forsætisráðherranum. "Úff He look´s like a nazi." Pat líst að vísu ekki neitt of vel á forsætisráðherrann okkar en sagði Íslendinga þó varla þurfa kvarta á meðan hann og landar hans sætu uppi með Bush sem gæti líklega ekki reimað skóna sína sjálfur.
Dissaði svo Nick Cave, sagði að hann væri dauður eftir að hann hætti í Bad Seeds og fullyrti að það myndu ekki mæta 10 manns ef hann kæmi að spila í LA. Svo reyndi hann að komast burt með bókina hennar Waris Dirie en Billi, ljósmyndari, náði honum á hlaupum.