»  off record  »  Menn sem ég mætti I
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Menn sem ég mætti I
Þriðjudagur, 26. nóvember 2002


Tók fyrir tilviljun viðtal við frábæra gaura í dag. Pönkrokkarana í White Flag sem eru byrja 20 ára afmælis heimstúrinn sinn á Grand Rokk á fimmtudaginn. Aðalsprautan í bandinu, Pat Fear, hafði orð fyrir hinum og talaði nánast út í eitt.

Ferlega hress gaur sem fílar Umberto Eco , The Doors (sá þá spila þegar hann var 6 ára) og segir að Vanja frændi hafi breytt lífi sínu þegar hann var 14 ára. Hann sagðist líka vera kominn af víkingum og írskum munkum og væri því væntanlega fjarskyldur frændi minn.

Þá hefur lengi langað til að koma hingað og Fear sagðist endilega þurfa að komast í the legendary Blue lagoon. Lyftist allur upp þegar ég sagði honum að Waris Dirie væri á leiðinni þangað líka. Reyndi svo að stela Eyðimerkudögun, nýju bókinni hennar, af borðinu mínu. Náði henni aftur en bassaleikarinn geðþekki Kim Crimson stal Durex penna af kaffistofunni.
Far enough. Goldie Hawn keyrði aftan á Pat um daginn og Barbara Streisand er alltaf að þvælast fyrir honum í grænmetishorninu úti í búð. Feimni gítarleikarinn sem hét Eitthvað Vacuum sagðist hafa séð Mickey Rourke út á götu og hann hefði litið skelfilega illa út. Það voru verstu fréttir dagsins.

Bullið í þessum náungum var alveg magnað. Heyrði síðar í Steinari Braga. Hann bullaði líka skemmtiega. Alveg böns. Á samt alltaf erfitt með að trúa skáldum og stjórnmálamönnum. Gæti haft eitthvað með veruleikatengingar þeirra að gera. Hvað um það Pat Fear rúlar. Snælduvitlaus.


| 22:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff