Sunnudagur, 08. desember 2002
Yfirspammari Íslands gaf sér tíma til að skreppa í Blómaval á laugardaginn. Væntanlega að kaupa inn fyrir jólatrippið til Badgad, en það er önnur saga. Hef lítið heyrt af tölvuhryðjuverkum Friðþórs síðustu daga. Gæti verið vegna þess að borðalagði bandítinn, Haraldur Johannesen RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN, hefur stolið öllum tölvunum frá Ástþóri. Sá er þó ekki af baki dottinn og faxtæki alþingis, fjölmiðla og embættis yfirherforingjans hafa ekki undan að dæla úr pappírsspammi Ásþórs. Komst í nokkur og birti highlights hér. Maðurinn er (brjálaður) snillingur.
Í bréfi til Hr. Ríkislögreglustjóri kvartar Ástþór yfir því að geta ekki svarað fyrirspurn frá VISA ISLAND "vegna þess að gögnin eru á tölvum sem útsendarar þínir stálu héðan úr Vogasel X þegar þeir misnotuðu húsleitarheimild til að fara inn í húsið með ólögmætum hætti.
Þess er krafist að þú skilir þegar í stað þýfinu sem eru Gateway 600 ferðatalva og JetBoard File Server.
Ef þú ekki skilar þessu þýfi sem þú hefur undir höndum án frekari tafa eða útúrsnúniga, þá skaltu svara VISA ISLAND fyrirspurninni. Bréf þeirra fylgir hér með."
Við skulum vona að Herr Johannesen svari Vísa fyrir hönd Ásþórs áður en það kemur til frekari aðgerða hjá þeim fautum. Hann heldur svo áfram að klaga og nær nýjum hæðum í stórkostlegu rövlinu og bendir nú RÍKISLÖGREGLUSTJÓRANUM á að Pútín sé kominn í málið. Johannessen hlýtur að prísa sig sæla að félagi Zhírínovskí sé ekki við völd í Kreml.
"Rétt er að geta þess að aðgerðir þínar gegn undirrituðum og Friði 2000 hafa valdið slíkri almennri hneykslan á alþjóðlegum vettvangi að jafnvel Miðstjórn Rússneska kommúnistaflokksins hefur skrifað Davíð Oddssyni forsætisráðherra og krafist þess að þér verði refsað fyrir athæfið.
Friðarsamtök heims munu hafa vakandi auga með aðgerðum þínum og tilraunum til að gera Ísland að lögregluríki."
Undir þetta kvittar, virðingarfyllst, Ástþór Magnússon.
Hann reyndi einu sinni að kæra mig til Siðanefndar BÍ fyrir að skrifa fréttir á vísi.is sem byggðar voru á orðréttum vísunum í tölvupósta sem hann sendi fjölmiðlinum sjálfur. Geri kannski einhvern tíma grein fyrir þeim skrifum hér, ef ég nenni auk þess sem faxbunkinn er ekki tæmdur en látum þetta gott heita í bili enda ekki ráðlegt að festast of lengi í Ástþóri og hans rugli. Þetta er good for a few laughs en verður fljótt þreytandi.