Þriðjudagur, 10. desember 2002
VARÚÐ SPOILERS!

Það er allt að verða vitlaust í höfuðstöðvum BadaBing! í New Jersey. Fjórða season af Sópranós káraðist um helgina og allir eru á hvínandi bömmer. Allir sem skipta einhverju máli eru þó enn lifandi og bara einn major asshole er dauður. Guess who?
Þeim sem eipuðu þegar DV kjaftaði frá Survivor er ráðlagt að lesa ekki lengra.
Jamm,
Carmlea er búinn að fá nóg af hóreríinu á Tony og er búinn að henda honum, golfkylfunum og fötunum hans út. Hvar endar þetta?
Játaði líka fyrir honum að hún hefði líka átt sitt ævintýri (hmmm...Tilhugalíf, anyone?). Já, fautinn hann Furio búinn að vera að nudda sér utan í konu sjéffans og hafði svo við á að fara aftur til Ítalíu fyrir fullt og allt.
Christopher er kominn úr meðferð og er enn krónprins en súpergellan Adriana er því miður ennþá FBI uppljóstrari, þannig að það fer örugglega allt til fjandans þar.
Einu góðu fréttirnar eru að Ralphie skítalabbi er orðinn höfðinu styttri. Þetta er auðvitað ólán í láni þar sem snillingsins Joe Pantoliano verður sárt saknað. Þetta gæti þó reddast og Tony fær örugglega að gista á Bing í bili.
Framleiðandinn klóki David Chase tók þátt í gerð handritsins af lokaþættinum sem er 75 mínútna langur og þykir slútta þessari frekar slöppu Sópranós syrpu með stæl. Harðir aðdáendur úti eru búnir að böggast heilimikið yfir seasoninu sem byrjaði á því að íslenskar konur voru ítrekað látnar koma fram sem hórur og eftir það var víst allt á niðurleið.
Snilldin er þó greinilega enn til staðar og liðið byrjar að skjóta fimmta og husanlega síðasta season eftir áramót.
fuhgedaboutit
| 0:28 |