Sunnudagur, 08. desember 2002
Amma er brjáluð út í Jón Baldvin Hannibalsson fyrir sneiðina sem hann sendir afa í Tilhugalífsbókinni sinni sem félagi minn í Svart/hvíta Frasiervinafélaginu, Kolbrún Bergþórsdóttir, skrifar. Held að það sé ástæðulaust að vera að láta kvabb í JBH bögga sig enda sjálfsagt góður slatti manna, ofan moldar og neðan, sem fær einhverjar gusur yfir sig frá þessum sjarmerandi stríðsfanga Davíðs Oddssonar í Helsinki.
Afi gamli lagði það hins vegar ekki í vana sinn að tala illa um fólk, allra síst pólitíska andstæðinga og ég heyrði hann aldrei hallmæla nokkrum manni nema einum, nefnilega Jóni Baldvin. Þannig að þeir hafa líklega ekki átt upp á pallborðið hvor hjá öðrum og því tilgangslaust að elta ólar við svona pillur.
Skil samt ekki afhverju opinskái sendiherrann upplýsir ekki lesendur bókarinnar um það hvaða maður það var sem hann ætlaði að drepa fyrir að vera eitthvað að dandalast með Bryndísi. Sá er víst enn á lífi og gæti líka haft frá einhverju krassandi í þessu sambandi að segja?