Laugardagur, 14. desember 2002
Endalausir snúningar sem fylgja þessu jólaböggi og svo eru auðvitað allir hinir maurarnir að slæpast fyrir manni. Bjó til málshátt á IKEA planinu í dag:
Oftast eru laus stæði fyrir fatlaða.
Sannreyndi hann svo þrisvar meðal annars við Hagkaup í Skeifunni.
Staðir sem ráðlegt er að varast út mánuðinn. IKEA (fjórði hringur Helvítis), Kringlan, Smáralind, Bónusverslanir og aðrir staðir þar sem fólk safnast saman.