»  off record  »  Stella Blómkvist er fundin!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Stella Blómkvist er fundin!
Sunnudagur, 29. desember 2002

Þrátt fyrir að hafa lofað sjálfum sér því að láta eðalrithöfundinn Stellu Blómkvist í friði framvegis rífur nú Tóti Tittur, fyrrum rannsóknarblaðamaðurinn og einræðisherra í útibúi Badabing! á Íslandi, þögnina og flettir ofan af Stellu í eitt skipti fyrir öll.

Jamm. Þetta er enginn lygi. Ég lá uppi í rúmi nýlega, létt ölvaður en samt andvaka when I had what alcoholics refer to as a moment of clarity og vissi allt í einu hver er maðurinn á bak við Stellu Blókmkvist. Þetta er svo skeliflega einfalt og hefur verið fyrir framan nefið á mér árum saman. Stella er ekki Árni Þórarinsson, ekki Stefán Jón Hafstein (eins og við Hrafn vorum klárir á á tímabili) og ekki Davíð Oddsson (heyrði þá kenningu í fyrra og kolféll fyrir henni í smá stund). Stella Blókkvist er enginn annar en Jón Óttar Ragnarsson, menningarfrömuður, vídeóleigustjóri í LA, næringarfræðingur og Herbalife kóngur.

Ég hef ekki gefið mér tíma til að fara í ítarlega samanburðargreiningu á verkum Stellu, Morðinu í Stjórnarráðinu, Sjónvarpinu, Hæstarétti og Alþingishúsinu og verkum Jóns Óttars Næringu og heilsu, Strengjabrúðum og Fimmtándu fjölskyldunni en það er bara formsatriði. Fimmtánda fjölskyldan gæti hæglega verið um Stellu Blómkvist og hremmingar hennar þegar eiginmaður hennar gufar óvænt upp. Hún er dásamlega illa skrifuð og ekki er þverfótandi fyrir flötum og fáránlegum steríótýpum og síðast en ekki síst er sett upp lessuorgía samkvæmt hefðbundinni uppskrift amerískra klámmynda en slíkt er einmitt eitt helsta leiðarminnið í verkum Stellu fyrir utan daðrirð við Jack Daniels og endalausa viskuna upp úr henni mömmu.

I rest my case. Jón Óttar er Stella. Þeir sem efast enn þurfa auðvitað ekki að hafa fyrir að lesa Fimmtándu fjölskylduna , þeim er einfaldlega bent á sígildan ritdóm Árna Blandons um bókina hér í Úrklippusafninu mínu. Tilfræðar setningar úr verkinu þar renna enn frekari stoðum undir þessa frábæru kenningu mína sem ég er býsna stoltur af þó ég segi sjálfur frá.

Já, laukurinn er í öllum skít, sagði mamma.


| 19:02 |
komment

Erlendur vinur minn hringdi til að ræða málin. Hann sagðist nú ekki alveg tilbúinn að fara út til Brentwood að brjóta upp gólfin hjá Jóni Óttari til að leita að Stellu handritunum. Erlendur sagðist vissulega hafa fullan hug á að leysa málið, en Tóti Tittur þyrfti að undirbúa það betur áður en hann legði í ferð til Kaliforníu.

Organistinn er sammála. Það er varla þess virði að pissa á teppið hans Jóns Óttars fyrr en góðar sannanir liggja fyrir að Jón Óttar sé The Big Lebowski frekar en The Dude.

Erlendur spurði hvers vegna Jón ætti að þurfa huldunafn fyrir Stellu Blómkvist því Stella sé nú minna hneyksli en flest sem Jón Óttar hafi gert í gegnum æfina og ætíð undir fullu nafni? Jón Óttar hafi til dæmis verið að nauðga öreigum Íslands með því að selja þeim Herbalife í píramída skema.

Þarna er laus hnútur í röksemdafærslu Tóta Titts.

Sem sagt, Tóti, þar er kominn tími til að þú notir háskólanámið og farir útí svolitla forensic bókmenntavinnu. Það er ef þú vilt sjá Erlend káfa á lærunum og fletta pilsinu upp um Stellu.

Annars kom gömul saga uppí huga Erlends. Um mann að nafni Jón sem bar póst á Vestfjörðum á fyrri hluta síðustu aldar. Hann lenti undir stóru snjóflóði og var týndur í þrjá daga í stórhríð áður en gerð var leit af honum. En svo brá við að þegar Jón varð var við björgunarmennina, þá gróf hann sig enn dýpra til að hann uppgötvaðist ekki þetta fljótt. Honum fannst hann ekki hafa þjáðst nóg. Gróf sig svo sjálfur út tíu dögum seinna, gekk niður í þorpið, þáði kaffi og kleinur, og hélt áfram að bera póst á Vestfjörðum eins og ekkert hefði í skorist. Eftir þetta var hann alltaf kallaður Jón Óttalausi.

Nr. 1 | organistinn | 31.12.2002 | 9:36:31 | [+] |

Sæll Organisti og til hamingju með nýja árið.

Það er mýmargt til í þessu hjá þér og sjálfsagt heldur kenningin ekki vatni. Datt bara ekkert annað í hug til að skrifa um. Það má þá bæta því við að ég er meðvitaður um það að Jón Ó Tar þarf ekki að skrifa neitt undir nafnleynd í ljósi þess sem hann hefur þegar birt undir nafni. Burðarbitinn í kenningu minni er hins vegar sá að ef það væri opinbert að hann er Stella myndi ekki nokkur maður kaupa bækurnar sem vitaskuld njóta svo athyglinnar sem fylgir nafnleyndinni.

Játa mig samt sigraðan.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 1.01.2003 | 23:42:27 | [+] |

Það var alls ekki meining Organistans að "sigra" þig. Enda finnst mér bráðskemmtileg og spennandi hugmyndin að Jón Óttar sé Stella. Sjálfur hefur Organistinn hvorki lesið Stellu né Jón Óttar (en mun bæta úr því næst þegar hann dvelur í sumarbústað á landinu) og getur því ekki dæmt um líkindin milli Stellu og Jóns.

Sem mótrök gegn Erlendi er ekki erfitt að ímynda sér að það hljóti að vera erfitt að birta undir nafni -- period -- eftir að hafa fengið á sig dóm eins og Árni Blandon deildi út til Jóns Óttar.

En í fyllstu alvöru: er enginn á landinu sem hefur velt fyrir sér og skrifað um höfundagreiningu byggðri á stíl, orðfari og slíku? Ég veit ekki hversu góð þessi fræði eru, en þau eru vissulega til.

Með kveðju um gleðilegt nýtt ár,
Organistinn

Nr. 3 | organistinn | 2.01.2003 | 0:42:43 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff