Laugardagur, 21. desember 2002

Hið magnaða bókaforlag Menn og málning hefur gefið út greinasafn Sverris Stormsker en í þeirri prýðilegu bók er að finna velflest (ef ekki öll) pistlaskrif hans frá árinu 1990 til okkar daga. Meginuppistaðan eru þrælhressar Morgunhrollvekjur hans úr Ísland í bítið á Stöð 2. Já, by the way bókin heitir einmitt Hrollvekjur og Hugvekjur og stendur fullkomlega undir því nafni. Vekur fólk til umhugsunar og hrellir smáborgara. Alveg eins og allar alvöru bækur eiga að gera.
Ég mæli eindregið með bókinni þó ég sé ekki búinn að lesa hana alla enda hef ég haft náin kynni af velflestum pistlum Stormskersins. Sérstakur fengur er í greinunum Brennið þið diskar (sem gerði allt brjálað á sínum tíma) og Auður Laxness þar sem Stormsker kemur uppáhaldsdrykkjuboltanum sínum Hrafni Gunnlaugssyni til bjargar í harkalegri rimmu við Guðrúnu Pétursdóttur, fyrrverandi næstum forsetaframbjóðanda, og bókmenntaelítuna. Báðir þessir pistlar birtust í DV árið 1995. Ég á þá auðvitað í úrklippubók en þið sem eruð minna geðveik hefðuð gott af því að ná í bókina og lesa.
Birti hér fyrir nokkrar sérvaldar setningar úr greinum bókarinnar sem Stormskerið valdi sjálft. Njótið vel og kaupið bókina strax, hún kemur bara út í 700 eintökum og ég er þegar kominn með eitt þeirra.
Athugið að hægt er að skoða slatta af Morgunhrollvekjum á Pressunni.
Sérvaldar setningar í boði Stormskers:
"Eina alvöru bomban sem Hussein mun eignast er sú sem hann fær í hausinn frá Bush."
"Það má minna á að Jesú fæddist í fjárhúsjötu, ekki þeirri ríkisjötu sem prestarnir vilja vera á."
"Ætli trúarofstækismenn séu ekki sterkasta sönnunin fyrir því að maðurinn og apinn eigi sameiginlegan forföður svo það er ekkert skrítið að þeir skulu vera svona sólgnir í að kveikja í Darwinsbókinni sem fjallar um þessi viðkvæmu fjölskyldumál."
"Það er aðeins eitt dýrmætara en heilsan - tóbakið."
"Ástþór á ekkert útistandandi, nema augun."
"
Áfengið hefur áhrif, ekki bindindispostular."
"Tímaskakkir stjórnmálamenn ættu að láta fjöll í friði og einbeita sér frekar að nefinu á sér þegar þeim finnst þeir endilega þurfa að bora í eitthvað."
"Í útlandinu er páfi sem vinnur við að kyssa flugvelli og rétta úr höndinni útá svölum heima hjá sér."
"Það er gasalega vinsælt að heiðra minningu frægra söngvara með því að endurútgefa frægustu lög þeirra í flutningi annarra söngvara. Það er svona álíka smekklegt og viðeigandi og að reka afmælisbarnið úr eigin veislu eða heiðra listmálara með því að mála yfir myndirnar hans."
"Þegar svo loksins verður búið að fjarlægja flugvöllinn þá teysti ég borgarskipulagssérfræðimeisturunum fullkomlega til að klúðra þessu svæði svo að heildarómynd borgarinnar raskist ekki."
"Það lag sem trónir efst á Top 10 í öllum trúarsöfnuðum landsins er ekki Ó Jesú bróðir besti heldur að sjálfsögðu Money money money."
"Hverskonar draugar eru það eiginlega sem trúa á miðla?"
"Þegar andstæðingurinn á aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig þá safna þeir sér þétt saman og halda um slátrið á sér. Hálfvitar. Þeir eru ekki að passa á sér hausinn. Nei, þeir þurfa ekkert á honum að halda í fótbolta. En slátrið þurfa þeir að vera með í lagi ef þeir eiga að geta fengið eitthvað kikk út úr leiknum."
"Halldór Laxness sagði í einhverri bók að eiginkonan væri dýrasta hóran, og það má vel vera. Annars hef ég nú bara þegið kaffi hjá Auði."
| 0:54 |