»  off record  »  Sverðlaus í málmleitartæki
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sverðlaus í málmleitartæki
Fimmtudagur, 12. desember 2002

Skildi sverðið mitt eftir í bílnum og komst í gegnum þuklið og málmleitina á forsýninguna á The Two Towers á þriðjudaginn.
For the record þá var ég ekki í sólarhringsröð að spila Pókemon til að ná í miða. Er löngu hættur að mæta á frum-, forsýningar og annað ef ég er ekki boðinn. Fegnum samt bara einn miða en Biggi Mausari þurfti að fara að hlýða á Nick Cave svo ég tók miðann.
Þetta var alveg stórfín bíóferð í boði Hellisins. Óneitanlega svolítið bjánalegt að þurfa að sýna skilríki við afhendingu miðans og svo aftur í röðinni inn í salinn þar sem maður var þuklaður og málmleitaður í bak og fyrir. Stúpid. Og til að toppa þetta völsuðu tveir öryggisverðir (ítalskir að sögn) upp og niður salinn á meðan á sýningu stóð og leituðu að internetídjótum með kamerur. Breytir engu að að myndin er gargandi schnilld. Allt ferlega flott og a.m.k. þrjú gæsahúðaratriði. Legolas og Aragorn keppast um kúlið og Mortensen hefur betur þó action álfurinn sé í góðum John Woo fílíng á köflum.
Myndin var algjörlega ótextuð og þess vegna skildi enginn rassgat þegar liðið fór að tala álfísku. Gísli yfirnörd í Nexus dreifði að vísu blaði með þýðingum fyrir sýningu og þegar álfabullið byrjaði fór hálfur salurinn að rína í blaðið í myrkrinu. Það virkaði auðvitað ekki. Skiptir auðvitað engu og það má bóka að allir sem voru þarna munu sjá myndina 1sinni til 2svar aftur með texta und alles. Læt flottustu álfamálsfrasana fylgja með hér að neðan (á ensku auðvitað) þetta missir svolítið marks annars.

ARAGORN - Show them no mercy... for you shall receive none!

LEGOLAS - May they find peace. May they find peace...in death.

LEGOLAS TO ARAGORN - You´re late.

Stundum er gaman að vera nörd. Magnað!


| 23:55 |
komment

Þetta hafa varla verið alvöru Nexus nördar samkvæmt þessari lýsingu...

Fyrir þessu eru tvær ástæður !

1. Alvöru Nexus Nörrar tala Álfamál án vandræða, ekki bara Zorglub mál eða Trekka mál...

2. Ef þetta hefðu verið alvöru Nexusnörrar þá hefðu þeir getað lesið þýðingarblöðin sem Gísli dreyfði án vandræða þarsem allir alvöru Nörrar eru með lítil vasaljós á lyklakippunum sínum.

Kveðja, Dórinn

Nr. 1 | Halldór E | 15.12.2002 | 15:00:18 | [+] |

Dóri gleymdi...

3. Alvörunördar eiga gemsa sem geta lýst upp heilu bíóin.

Nr. 2 | nrrdgrrl | 13.05.2005 | 21:40:37 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff