Upp, upp mín sál og allt ógeð
Föstudagur, 27. desember 2002
jólavitleysan að baki eina ferðina enn og full ástæða til að fagna því. Hélt að ég léti jólin ekki trufla mig en einhverra hluta vegna hef ég verið í vikufríi frá vefnum. Var þó aðeins í þrjá daga frá vinnu og það var nóg til þess að ég þurfti að eyða morgninum í að henda nokkrum megabætum af spammi frá vinum Ástþórs út um allan heim. Þetta er að verða frekar hvimleitt og ljóst að Ríkislögreglustjórinn verður að fara að skila Geggjagauri tölvunum svo hann geti sent öllum þessum sjúklingum póst um að hann gangi nú laus. Vitleysingarnir virðast nefnilega flestir standa í þeirri meiningu að Ástþór sé enn pólitískur fangi og subjectið á póstunum er nánast undantekningarlaust "Free Astthor" eða "Free Assthor". Maðurinn virðist vera að ná þeim status að Free Nelson Mandela verður örugglega jólalag hérna næstu árin. Þetta skeyti bar af restinni af ruslinu í dag:
Please do not put Santa in Jail because he is against the war.
Alfredo