»  off record  »  Barði Hamar (1986-1988)
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Barði Hamar (1986-1988)
Fimmtudagur, 23. janúar 2003

Þessir vitringar sem segjast ætla að fara með Stöð 1 í loftið og hafa verið á leiðinni að gera það bráðum í 2 ár. Sögðust ætla að hafa Sledge Hammer og SOAP á dagskrá. Þolinmæði mín gagnvart þeim er á þrotum og hér með er Markús Örn beðinn um að leysa málið og endurvekja Barða Hamar.

Endurbirti hér gamla minningargrein um manninn:

Ein mesta snilld sem sést hefur í sjónvarpi fyrr og síðar eru án efa þættirnir um lögguna Sledge Hammer, eða Barða Hamar, eins og hann hét í snilldarþýðingu Guðna Kolbeinssonar. Þættirnir toguðu og teygðu þekkta töffara á borð við Dirty Harry og Hunter sundur og saman með beittu háði og frábærum húmor, auk þess sem þættirnir voru sneisafullir af skemmtilegum vísunum í dægurmenningu samtímans, sérstaklega sjónvarp og kvikmyndir. ("Matlock" er t.d. nútímadæmi um heilaþvott í anda "A Clockwork Orange").

Sledge Hammer er snælduvitlaust, ofbeldishneigt karlrembusvín, sem talar við byssuna sýna og ber lágmarksvirðingu fyrir mannréttindum og fyrir honum er ekkert til sem heitir réttarstaða grunaðs manns, enda á hann alltaf í höggi við "slimebuckets" og "scumsuckers". Hann skortir hins vegar ekki sjálfstraustið og leysir hvert málið á fætur öðru með dyggri aðstoða félaga síns, hinnar leggjalöngu Dori Doreau sem þarf oftast að hafa vit fyrir þeim báðum. Yfirmaður hans Captain Trunk er svo með krónískt magasár út af eilífum axarsköftum Barða, sem er reglulega settur á "suspension".

Barði leysir allt með ofbeldi, sem hann telur allra meina bót. Hann lemur og pyntar grunaða og verður þunglyndur ef hann fær ekki tækifæri til að hleypa nokkrum skotum af byssunnni sinni (Amigo) daglega. Hann er með eldflaugavörpu í skottinu á bíldruslunni sinni og lætur sig dreyma um að ráðast inn í Afganistan einn síns liðs.

David Rasche, (vanmetinn leikari sem hefur sést í myndum eins og "Cobra", "Bingo", "That Old Feeling", "Delirious") túlkar Hammer snilldarlega og notar miskunarlaust ýktar Clint Eastwood grettur, skartar Dirty Harry sólgleraugum og er hallærislegri en Hunter í fatavali. Skræpótt bindi, skrautlegir jakkar og mislitir sokkar. Bíllinn hans er svo einnig í Hunter stílnum, handónýtt beyglað rusl, með kúlnagötum út um allt. Rétt er að vekja sérstaka athygli á Rasche í ruslinu "An Innocent Man" með Tom Selleck, en þar leikur hann spillta löggu og rifjar upp alla bestu Hammer taktana: "Read them their rights while I beat them up", o.s.frv.

Þættirnir vísa oft skemmtilega í bíómyndir og sem dæmi má nefna að Hammer drepst í þættinum "Hammeroid" og snýr aftur sem, e.k. RoboCop með rautt blikkljós á hausnum. Þá lendir hann í geðsjúkri grúppíu (sbr. "Play Misty for me"), tekst á við lofthræðlsu í "Vertical" (sbr. "Vertigo") o.s.frv. Þá gerist hann einnig einkaspæjari og hefur þá Humphrey Bogart sér til halds og trausts.

Nöfn þáttanna eru oft tær snilld; "The SPA who loved me", "Suppose they gave a war and Hammer came", "They shoot Hammers don´t they", "Magnum Farce", "Miss of the Spiderwoman" og "Jagged Sledge", og svo mætti lengi telja og þættirnir eru einfaldlega slík snilld að þeir jafnast hæglega á við það besta í bresku grínsjónvarpi og eru svo frábærlega leiknir og snilldarlega skrifaðir að það er hægt að horfa endalaust á þá aftur og aftur og þrátt fyrir að húmorinn sé alls ráðandi í þáttunum þá kraumar bullandi þjóðfélagsádeila undir niðri og skotin á samfélagið eru mjög svo í anda MAD blaðanna.

Þættirnir náðu aldrei almennilegum vinsældum í Bandaríkjunum enda kepptu þeir við ótrúlega vinsælan viðbjóð á borð við "The Cosby Show" og gott ef "Miami Vice" var ekki líka í toppslagnum á þessum árum. Framleiðendur þáttanna gerðu sér því engar grillur um að þátturinn yrði langlífur og létu því Hammer, eins og honum einum er lagið, sprengja kjarnorkusprengju í lokaþætti fyrstu seríunnar. Svo gerðist það bara alveg óvænt að gefið var grænt ljós á annað ár og þá var brugðið á það ráð að láta þá þætti gerast fyrir sprenginguna. "Sledge Hammer: The Early Years" og gefur seinni serían þeirri fyrri ekkert eftir í geðbiluðum og beinskeyttum húmornum.

RÚV sýndi þættina á þriðjudögum klukkan 19:30 og þátturinn höfðaði sterkt til íslenskra eðalhúmorista og Hammer á sterkan "cult" aðdáendahóp hér á landi, þannig að það er ærin ástæða fyrir RÚV að huga að endursýningum, auk þess sem hér er rakið tækifæri fyrir Skjá einn til að slá eina ferðina enn í gegn með því að taka þessa frábæru þætti til sýninga. Það hlýtur að vera hægt að fá þá fyrir slikk.

Ég gæti haldið áfram út í hið óendanlega að lofa "Hammerinn" en læt hér við sitja í bili en vil nota þetta tækifæri til að auglýsa eftir öllum þeim sem höfðu rænu á að taka þættina upp á sínum tíma. Hver einn og einasti er gullmoli og sjálfur á ég haug af þeim og vil endilega "skipta".

Skoðið frábæra heimasíðu tileinkaða Hammer.

Sledge Hammer rúlar, trust me I know what I´m doing.

Hammer semur dauðarokkstexta á staðnum. SCHNILLD


| 22:45 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff