»  off record  »  Batnandi englar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Batnandi englar
Fimmtudagur, 09. janúar 2003

Fann þessa áður óbirtu snilld eftir sjálfan mig á Innherjakleppnum. Ég er greinilega allur að koma til andlega samkvæmt þessu. Hlýtur að vera þetta auka N í eignarfalli sem ég hef bætt á mig. Allt staðfestir þetta a.m.k. gömlu Lukku-Lákabókaviskuna um að batnandi englum er best að lifa. Og alltaf er nú gambrinn góður.

Innherjaforlagið hefur komist yfir nokkrar servíettur með hrafli snillingsins okkar allra, Þórarins Þórarinsson. Birtast hugsanir hans hér í vandaðri framsetningu magistersins okkar, Stebba;


05.01.03
Ég er enn lifandi, en veit ekki samt hvort ég lifi af daginn á morgun þ.e.a.s þrettándann. Þá þarf ég einmitt að vakna klukkan átta til að vinna í fjóra tíma á dagvinnukaupi. Ég gæti hugsanlega lifað daginn af ef stebbi kemur ekki í heimsókn til mín. Annars er ég búinn að gera lítið annað en að vinna eftir jólin í þeim tilgangi að minnka mínuspeninginn minn. Ég fékk blakkát á gamlárskvöld og ekki var verra að heyra allar slúðursögurnar daginn eftir. Það hefði svo sem verið hægt að ljúga hverju sem er að mér.


06.01.03
Yess!
Viðtalið gekk vonum framar ef miðað er við þann gríðarlega sóðaskap sem einkenndi stemmninguna. Mér fannst ég því eiga það skilið að slappa vel af og er búinn að vera að chilla síðan þá. Það er heldur ekkert auðvelt að slappa svona af. Maður er eiginlega búinn að gleyma því og þess vegna finnst er mér lífsnauðsynlegt að leggja mig núna eftir þessi átök.

07.01.03
Það þýðir ekki að monta sig af einhverju vefsetri og gera svo bara ekki neitt!!! Mér finnst þetta subbulegt í meira lagi og eigandanum og hans afkomendum í þrjá ættliði til ævarandi skammar og háðungar!


08.01.03
Æ, hvað lífið er eitthvað leiðinlegt og þurrt. Ég týndi lífsgleðinni á þriðja vinnudeginum hjá Fréttablaðinu og hef ekki komið auga á hana síðan. Svartnættið hefur hellst yfir mig af meiri krafti en nokkru sinni fyrr. Ekki bætir það heldur úr skák að flestir vinir mínir eru á einhvern hátt útlitslega bæklaðir.

09.01.03
Það er ekki ein manneskja búin að senda mér póst! Ég ítreka að ég er ekki með netföngin hjá neinu ykkar og mér þætti því vænt um ef þið senduð mér póst, þess vegna auðan, bara til þess að ég fái netfangið ykkar!


10.01.03
Þá er búið að taka niður upplýsta Jesús jólaskrautið í gluggann í íbúðinni fyrir ofan mig. Þeir sem misstu af þessu stórmerkilega skrauti er bent á að gera sér ferð upp í Breiðholt um næstu jól.


11.01.03
Ég er búinn að vera sóði dauðans hvað vinnu varðar í dag. Þetta nær ekki nokkurri átt
Mikið afskaplega vildi ég nú að ég gæti skilið það sem stendur hér!


13.01.03
Það er nú alveg merkilegt hvað lítið hefur borið á stebba núna undanfarið bæði á netinu og svo bara hinsegin. Hann er kannski bara að reyna að vera kúl, eins og hann er að reyna það hér!
Djöfull líður tíminn annars hratt þegar maður er í pásu!


14.01.03
Ég var eitthvað að fikta í html-kóðanum á síðunni minni í gær og oink! Allt fór í fokk. Ég tróð því þessu drasli upp til að bregðast ekki aðdáendum mínum út um allan heim. Þetta er samt bara til bráðabirgða.

15.01.03
Ég vildi nú bara nota tækifærið og leiðrétta þann leiða misskilning sem varð til jólahlaðborðinu að þessi gaur hér er ekki ég. Það skal alveg játast að hann er mjög líkur mér og það er í leiðinni líka stórmerkileg tilviljun að hann hafi vakið athygli á sér á jafn hallærislegan hátt akkúrat þegar ég ákvað að fela mig, bara í gamni, einhvers staðar í skipinu.

16.01.03
Mikið afskaplega var þetta slappur vinnudagurdagur hjá mér. Ó mig auman!
Það er kominn nýr ostskeri inn á heimilið og ég hata hann! Það er saumaklúbbur hjá konunni núna en ég er svo að bíða eftir að þær fari svo ég geti horft á Survivor sem mamma tók upp fyrir mig fyrr í kvöld. Annars er frekar gaman að hlusta á bullið í þeim. Áðan voru þær að hlæja að orðinu sperm eins og sjö ára stelpur.

17.01.03
Hvað er málið með öll þessi persónuleikapróf? Jæja, ég tók listaverkaprófið og þetta er niðurstaðan

If I were a work of art, I would be Prehistoric Cave Art.

I am primal and mysterious. Somewhat removed from modern life, I have a powerful ability to evoke wonder and show a sensitivity to nature as well as talents beyond what most people think of me.


18.01.03
Gott að mæta klukkutíma of seint í vinnuna og ná ekki að klára pistilinn af þeim sökum! Ég held ég gæti sennilega ekki verið meira pirraðari. Hvað er þetta mikið svekkjandi? Allavega. . . . .


19.01.03
Gott kvöld hjá mér. Var að koma heim frá afa og ömmu þar sem ég sat og drakk gambra allt kvöldið.


| 19:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff