Miðvikudagur, 15. janúar 2003
Einver komplexaður aftúrkreystingur og vistmaður á Innherjakleppi viðrar í dag hálf morkna samsæriskenningu sem gengur út á það að ég og geðsjúklingurinn bush séum að stunda hlutabréfabrask. Lykillinn að scaminu er svo víst hversu auðblekktur einfeldningurinn stebbifr er. (Taugaveikluðustu innherjarnir eru á því að kenningarsmiðurinn sé hinn alræmdi og oft á tíðum skemmtilegi RefurLoki. Alveg er mér sama en fyrirbærið stundar það víst að stela nikkum klepparanna og bæta punkti við fyrir aftan. Oft á tíðum skemmtilegur leikur sérstaklega þegar menn leggja sig fram um að stæla stíl viðkomandi punktsleysingja. Þreytist samt ótrúlega fljótt).
Sendandi: organistinn.
Dags: Mið. 15. jan. 2003, 14:51
Efni: Þórarinn Þórarinsson og bush braska
Kunningi minn í bankanum sagði að bush og Toti væru komnir með pottþétt verðbréfakerfi:
Fyrst plata þeir stebba til að hringja inn leggja pöntun á 50000 bréf í t.d. Búnaðarbankanum. Þá hækkar kúrsin almennilega. Um leið segja þeir stebba að setja tímatakmörkun á pöntunina (svona 10 mínútur, þannig að ekki náist að afgreiða hana).
Nokkrum mínútum seinna hringja svo Toti eða bush og selja 10000 bréf í Búnaðarbankanum, sem þeir hafa keypt fyrr um morguninn. Þannig fá þeir ágæt tímalaun fyrir þriggja mínútna vinnu.
Þetta gengur því tæpast upp hér þar sem ég tel víst að hinn eini sanni organisti hafi áttað sig á því að viðskiptavit mitt er svo takmarkað að ég myndi aldrei leggja í bissniss með frjálshyggjubelg á borð við bush og hjartagæska mín og gott uppeldi kemur að sama skapi í veg fyrir að ég notfæri mér einfalda vættis písl að norðan.