Eilíf endurtekning hins sama
Fimmtudagur, 16. janúar 2003
Endurvann gamlan brandara í vinnunni í dag. Sýnir svo ekki verður um villst að sagan er undarleg hringrás. Þess ber þó að geta að þó menn séu byrjaðir að brosa gengur brandarinn ekki að fullu í gildi fyrr en í kringum 2006.
Afhverju brosa Reyðfirðingar út að eyrum?
Til að fá flúor í tennurnar.
Baul og stuð í Ráðhúsinu í dag þangað til löggan fjarlægði einn mann. Þurfum við að gana í EB til þess að Íslendingar fari að mótmæla eins og menn (eða Frakkar) og sýna ástríðufullar tilfinningar sínar með ofbeldi?