Mánudagur, 27. janúar 2003
Sigurður Sigþórsson, uppfinningamaður á Tunguhaga í Fljótsdalshéraði, hefur að eigin sögn fundið upp eilífðarvél sem framleiðir rafmagn án þess að nota neina utanaðkomandi orkugjafa.
Ég átti ágætt spjall við uppfinningamanninn um daginn en hann er öryrki, með gamalt grunnskólapróf, og hefur unnið að hönnun vélarinnar í sjö og hálft ár. Hann er frekar leyndardómsfullur þegar kemur að vélinni sjálfri þar sem hann hefur ekki sótt um einkaleyfi og vill því sem minnst um gerð hennar segja.
Hugmyndin að vélinni er eldri en svo að hún sé eitthvert viðbragð við virkjunar og orkumálum fyrir austan en uppfinningamaðurinn segir þó að ef það er hægt að gera eina vél sé að sjálfsögðu hægt að gera margar og vélin gæti því komið í stað virkjunar þó hann hafi nú aðallega ætlað henni að leysa kola- og olíukyndingu af hólmi.
Sigurður segir það vissulega rétt að vélin gangi þvert á öll viðtekin lögmál en segir hana engu að síður virka og bætir því við að hún sé afar einföld að gerð. Hún er "algerlega umhverfisvæn" og ekki mjög stór. Það er hins vegar dýrara að framleiða eina vél en margar og Sigurður segist þurfa á stuðningi að halda til að ljúka við frumeintakið sem kostar um 2,5 milljónir í framleiðslu.
Hann hefur fengið samanlagt rúma milljón í styrki frá Iðntæknistofnun, Byggðastofnun og fleirum. Hitt hefur hann fjármagnað með lánum. Hann er búinn að reyna við alla sjóði á Íslandi og segist vera kominn hringinn. Hann hefur meðal annars sótt um styrk hjá Landsvirkjun en þar fékk hann þau svör að Landsvirkjun tæki ekki þátt í nýsköpun.
| 11:04 |