»  off record  »  Einstæðingur tantrar á ný
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Einstæðingur tantrar á ný
Þriðjudagur, 07. janúar 2003

Eitursnillingurinn Þorsteinn Guðmundsson hefur snúið aftur á Netið en hann hélt á sínum tíma úti hinum kostulega vef g.x.fni.is á Strikinu. Þar var mestur fengur í hljóðsketsunum sem eru margir hverjir gargandi snilld. Þetta efni hefur ekki beinlínis verið aðgengilegt síðustu mánuði en er flest allt saman komið á nýja vefnum. Krypplingurinn er modern classic og Einstæðingurinn sem tantrar jafnast á við það besta frá Ibsen og Strindberg; átakanlegt raunsæi kryddað nettri geðveiki. Einstæðingurinn fór sigurför um netið á sínum tíma og vakti mikla athygli ekki síst hjá dýravinum sem vildu kæra Steina fyrir að teipa kött og bera á hann lotion. Hann kom þá alveg af fjöllum og sagðist ekki hafa vitað betur en tantra væri handayfirleggingar og huggulegheit - kynlíf með ketti var sem sagt ekki hugmyndin. Sketsinn er svo aftur á móti jafn fyndinn hvernig sem á hann er litið.


| 20:27 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff