»  off record  »  Endalausir bömmerar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Endalausir bömmerar
Miðvikudagur, 08. janúar 2003

Þau ánægjulegu tíðindi fundust á fréttaruslahaugunum í byrjun vikunnar að þunglyndi stafar bara alls ekki endilega af brengluðum efnaskiptum upp í haus. Ný könnun staðfestir þetta og þykir sýna fram á að vandamálið sé ekki síður félagslegt. Þetta eru slæm tíðindi fyrir mig enda hef ég hingað til huggað mig við það að félagsleg fötlun mín stafaði af þunglyndi en ekki öfugt.
Kvillinn herjar víst helst á þá sem hafa orðið undir í lífinu, bæði í leik og starfi, þannig að þunglyndi mitt stafar fyrst og fremst af því að ég er blaðamaður á skítalaunum og kláraði ekki bókmenntafræðina. Þetta er því miður vandamál sem engar pillur laga og ég þarf greinilega að gera eitthvað sjálfur og taka til í eigin ranni. Varð svo brugðið við þessa opinberun að ég tvöfaldaði lyfjaskammtinn minn og er því kominn á skammdegisþunglyndiskúr, þó ekkert sé skammdegið.
Bömmer.


| 15:23 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff