»  off record  »  Er ég ennþá nörd?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Er ég ennþá nörd?
Þriðjudagur, 21. janúar 2003


Ég missti það út úr mér á morgunfundi um daginn að ég ætti allar 12 tommur sem komið hafa út með breska eðalbandinu Duran Duran. Fékk mikið af undarlegum augnagotum og samúðarfullum hálfbrosum og síðan þá hefur enginn talað við mig. Fyrir utan Stúlkuna sem stelur namminu mínu en hún vill endilega að ég haldi 80´s partý. Magnaður andskoti.
Ég hélt sem sagt í augnabliks heimskukasti að það væri löngu hætt að setja sama sem merki milli söfnunaráráttu og geðveiki og lét það fljóta með plötusögunni að ég kúrði á 79 s.k. Star Wars köllum in mint condition (með vopnum og allt) og hefði meira að segja neitað að selja þá á eBay fyrir útborgun í íbúð þegar konanmín vildi breyta þessari fjárfestingu í peninga. Þessi játning bætti ekki almenningsálitið en sá hlær best sem síðast hlær og síðast þegar ég gáði var gengið á Star Wars köllunum mínum hærra en gengið á bréfum í deCODE.
Félagsleg einangrun mín í vinnunni fullkomnaðist svo í gær þegar þetta helvítis handboltakrapp byrjaði í Sjónvarpinu. Veit ekki hvað það er og er því óviðræðuhæfur. Veit þó að Íslendingar eru aumingjar og þó þeir geti unnið þjóðir sem hafa jafn mikinn áhuga og ég á handbolta þá á skellurinn eftir að koma.

Fuhgedaboutit


Ég lagðist í smá rannsóknarblaðamennsku, eftir að tveir þefvísir blaðamenn, Eiríkur Jónsson og Reynir Traustason voru báðir búnir að spyrja mig að því hvenær fjórða þáttaröðin af Sópranós byrjaði í Sjónvarpinu, og fékk það staðfest hjá erlendu dagskrárdeildinnni að Tóný og co mæti til leiks mánudaginn 24. febrúar.
Fögnuði okkar hér á BadaBing, Iceland verður vart með orðum lýst en það er byrjað að lóða niður súlurnar fyrir flugfreyjurnar, vindlarnir eru í rakakassanum og rauðvínið dregur andann rótt.

Ekki veit ég hvort áhugi Reynis á skipulögðum glæpamönnum hefur eitthvað að gera með það að hann hefur verið kærður fyrir hnýsni (það verður auðvitað geggjað stuð í vinnunni ef Reynir verður dæmdur og fordæmi skapast fyrir því að blaðamönnum verði bannað að vera forvitnir og hnýsast). En þetta er auðvitað bara professional hazard eins og hinn hagmælti Hafliði benti Reyni á; ef maður er alltaf með nefið ofan í hvers manns koppi þá kemst maður ekki hjá því að fá smá skít á það af og til.


| 20:48 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff