»  off record  »  Menn í útrýmingarhættu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Menn í útrýmingarhættu
Þriðjudagur, 28. janúar 2003

Játaði mig endanlega sigraðan í dag og keypti Græna kortið. Þ.e.a.s. klinkið kláraðist og ég varð að kaupa kortið með Euro. Fékk skelfilegt flassback þegar konan í glerbúrinu stimplaði kortið og upplifiði aftur gömlu angistina sem var daglegt brauð þegar ég tók 7una upp á bensínstöð.
Sú martröð endurekur sig varla ef marka má DV sem heldur því fram að bensínafgreiðslumenn séu að deyja út.
Voðalega vita þeir lítið um aumingjaskap íslenskrar þjóðar. Það er langt þangað til sá helmingur hennar sem er vanur að láta stjana við rassgatið á sér fer að geta afgreitt sig sjálfur með eldsneyti. DV verður löngu horfið af sjónarsviðinu áður en síðasti bensínafgreiðslumaðurinn leggur upp laupana.
Olíufélögin sjálf munu sjá til þess þar sem þau viðhalda aumingjaskapnum í þjóðinni með því að keyra allan sinn áróður á þjónustuþvaðri sem verður svo til þess að viðskiptavinurinn fyllist slíkum ofmetnaði og hroka að hann telur sig yfir starfsfólkið á bensínstöðvum hafinn og veður uppi með frekju og yfirgangi (jafnvel þegar hann er bara að kaupa Lottó og klámblöð) þar til einhver dæludúdinn snappar og stingur 20 tommu skrúfjárni í hausinn á einhverri frekjunni.
Þjónustan er það sem allt snýst um og olíufélögin keppa í þjónustustigum en ekki verðlagningu og almenningi svo talin trú um að þetta sé allt launakostnaður og breytist ekki fyrr en vélar hafa alfarið leyst bensínkallana af hólmi.
Búllsjitt.


| 20:33 |
komment

Í dag keyrði ég inn á bensínstöð Tóta og bað um fullan tank. Eftirfarandi orðaskifti áttu sér stað :
- Fyllan, vinur.
- Alveg í topp?
- Já, alveg í topp.

Á bensínstöð Tóta er fullur tankur sem sagt ekki fullur. Það er enn pláss. Fullur í topp. Verð að muna eftir að spyrja rektor Pál Skúlason að þessu.

Nr. 1 | Refurinn Loki | 28.01.2003 | 21:10:40 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff