Sunnudagur, 05. janúar 2003
Heyrði einhvers staðar að vér heiðingjar hefðum kosið okkur nýjan goða. Það er nú gott og mest gleður mig að Hilmar varð fyrir valinu. Átti alveg eins von á að prestssonurinn Þórólfur Árnason yrði sjanghæaður í djobbið - bara svona til málamynda.
Ég hélt nú samt alltaf með Jörmundi þó hann sé alveg vonalus trúður, bara vegna þess að þessi söfnuður þolir ekki að hafa kerlingu eða skegglausan karl fyrir allsherjargoða. Það er bara eitthvað svo rangt við það en Hilmar er nú sem betur fer ekki karl skegglaus. Sú hugsun sækir þó enn að mér að réttast hefði verið að loka sjoppunni þegar Sveinbjörn féll frá enda alvöru arftaki enn ekki í sjónmáli og við eigum alveg að geta blótað goð okkar án safnaðarstarfs. Halelúja!