»  off record  »  Öll dýrin í skóginum...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Öll dýrin í skóginum...
Miðvikudagur, 29. janúar 2003

Örn hinn ógurlegi var á Hlemmi, með ferskt glóðarauga, í gær með sjóndapra kallinum og prótókollmeistara gengisins, sem þolir ekki dónaskap og þarf því alltaf að vera að skamma Örn. Það virtist allt vera fallið í ljúfa löð og sá gamli var alveg búinn að jafna sig á djöfulganginum sem var í vígamanninum fyrir helgina. Hann var með e.k. vísi að gleraugum. Gott ef það voru ekki þau hin sömu með slatta af teipi.

Flýtti mér að pakka saman og forða mér úr vinnunni þegar liðið safnaðist saman fyrir framan sjónvarpið að horfa á einhvern handboltaleik. Maður sleppur þó ekki svona auðveldlega þegar íslensk þjóðarsál sameinast í tilgangslausu múgæsingarkasti. Lýsingunni var blastað í botni í strætó. Merkilegt að dagsdaglega þarf maður að rembast við að hlusta á fréttirnar, síðdegisútvarpið og Spegilinn um borð í strætó en þegar Samúel Örn byrjar að öskra þá fyrst er hækkað. Hélt svo áfram að hlusta á lýsinguna upp allan stigaganginn heima en veit þó ekkert hvernig fór.

Enginn hefur krafið mig um skýringar á því hvers vegna ég þarf að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum í vor, þannig að ég ætla að skýra málið.
Einhverju sinni eftir langvarandi sukk og svínarí var ég rekinn að heiman og átti ekki afturkvæmt þrátt fyrir að bót og betrun væri lofað. Brá því á það ráð að bjóða konunniminni að saga af mér hægri handlegginn til að sanna ást mína. Henni fannst það nú hrökkva skammt og fór þess í stað fram á að ég lofaði að kjósa Sjálfstæðisflokkinn það sem ég ætti eftir ólifað. Þyngri refsingu gat hún ekki hugsað sér og það er líklega rétt að stærri fórn getur maður ekki fært fyrir ástina.


| 16:59 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff