»  off record  »  Sálgreining við Tjörnina
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sálgreining við Tjörnina
Mánudagur, 06. janúar 2003

Þetta var merkilegur dagur í íslenskri fjölmiðlasögu. Morgunblaðsrisinn rumskaði af áratuga blundi og kom út á mánudegi. Hef ekki séð blaðið en hef það fyrir satt að þetta hafi í alvörunni gerst og verði fastur liður framvegis. Magnað.
Þá mætti DV til leiks í svörtum síðdegisblaðsbúningi í dag og fæst nú keypt á litlar 100 krónur svo lesendur geti kynnst því betur. Sérfræðingur á fjölmiðlamarkaði sem ég ræddi við í dag kaus nú að orða það þannig að DV fengist nú á raunvirði. Einkennilegt að breyta ytra útlitinu en hrófla ekki við öðrum síðum. Svona ef menn eru að taka til hjá sér á annað borð.
Fréttablaðið birti svo í dag skoðanakönnun sem mælir Samfylkinguna stærri en Sjálfstæðisflokkinn. Ingvi Hrafn þingforseti á Sögu lýsti því yfir að könnunin væri ein stærsta fréttafölsun Íslandssögunnar. Félögum mínum sem sátu sveittir við símann á laugardaginn var ekki skemmt yfir þessum blammeringum fjölmiðlasérfræðingsins en hver tekur hann svo sem alvarlega eftir þetta.

Eitthvað kom það við kauninn á sumum Innherjum að ég skildi birta stuttaralega greiningu mína á fyrirbærinu. Það er svo sem ágætt og skarplega athugað hjá einum þeirra að ég sé komplexaður ræfill. Það er rétt og ég hef aldrei farið í felur með það enda býsna ánægður með geðveilur mínar og drykkjusýki. Mamma hringdi hins vegar í mig og bannaði mér að skrifa svona og gjöra svo vel að láta rætni og níð eiga sig framvegis. Fór í þunglyndi niður á Tjörn og spjallaði við endurnar. Þær eru sammála mömmu, þannig að ég fer líklega að hætta þessu.

Bara svona rétt í lokin um Innherjana af því þeir hafa svo gaman af því þegar um þá er talað. Blaðamaður nokkur sem er bæði gleggri og hvassari en undirritaður benti mér á það í dag að Innherjarnir væru alltaf eins; opnaður þráður um eittthvað, reynt að hefja umræðu og í fjórða pósti er allt runnið út í nöldur og kjaftæði. Þetta er sjálfsagt alveg rétt en þessi skitsófrenía sem er innbyggð í eðli Innherjana er einmitt það sem gerir þá svo kostulega lesningu.

GO INNHERJAR!


| 18:56 |
komment

Sæll Tóti:

Ég sé að Loki er að hjálpa þér við að koma á útibúi fyrir Badabing á Innherjum. Hefur það aukið aðsóknina að aðalstöðvunum?

Kveðjur,
Organistinn

Nr. 1 | organistinn | 8.01.2003 | 4:51:19 | [+] |

Hádí Mr.

Jú, ég get ekki neitað því að ótuktarskapurinn í Laufeyjarsyni hefur orðið til þess að afvegaleiða allt of marga hingað. Það er auðvitað alveg kolómögulegt þar sem uppfærslukomplexarnir frá því maður var á Strikinu blossa upp og manni finnst maður verða að bjóða upp á eitthvað handa þeim sem asnast hingað inn. Þunglyndissjúklingur höndlar ekki slíkt álag í janúar þannig að ég bind vonir við að það fari að hægjast um á ný og þessu markaðsátaki á Innherjavefnum sé lokið.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 8.01.2003 | 8:35:57 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff