Föstudagur, 17. janúar 2003
Forsætisráðherrann okkar þaulsæti á afmæli í dag. Ég er ekki mikið fyrir stjörnuspeki og afmælisdagakenningar en það er samt svolítð magnað með hvaða heiðursmönnum hann Davíð okkar (55) deilir afmælisdegi. Best af öllu er auðvitað að okkar maður virðist sameina eiginleika allra þessara afmælisdagsbræðra sinna í sjálfum sér.
1962 Jim Carrey er leikari og grínisti, eins og Davíð.
1942 Muhammad Ali var leiftursnöggurboxari og þungaviktarmaður, eins og Davíð.
1931 James Earl Jones er rödd Svartkrulla í Star Wars.
1928 Vidal Sassoon reyndi að hemja hár, eins og Davíð.
1889 Al Capone. Hin bláa hönd bannáranna.
1860 Anton Chekhov var rithöfundur og leikskáld, eins og Davíð.