Mánudagur, 27. janúar 2003
Rambaði inn á Dagbókarbrot Þórs Steinarssonar þegar ég var að kasta rekunum á Bloggi dauðans. Þór er greinilega ekki galinn og lætur það ekki trufla sig hvaðan ég fæ drykkjupeninga (það er þó kannski rétt að geta þess að ég er hættur að drekka þessa dagana og er því ekkert nema goðsögn um gamla fyllibyttu) um þessar mundir. Við þekkjumst víst líka úr bókmenntafræðinni. Kem honum að vísu ekki fyrir mig, enda þekki ég engan úr bókmenntafræðinni, en sé ekki ástæðu til þess að rengja hann þar sem hann lýsir mér sem "lóner af guðs náð". Falleg orð og sönn.
Nóg um það hann setur mig í flokk með einhverjum sem hann kallar snillinga. Sá þó bara einn á listanum sem er pottþétt snillingur en það er nafni minn og fyrrum vinnufélagi totil.com.
Tóti Leifs er últra kúl, þrælsniðugur og skrópaði í kaffiboð með Gunter Grass þegar sá var hérlendis síðast. Hann bregður upp skemmtilegri mynd af fyrrum vinnustað sínum í dag:
Á þeim tíma var maður að skila illa hekluðum html-síðum í einhverja yfirborgaða database-tölvuhjassa sem litu ekki einu sinni á þetta áður en þeir hentu þessu í loftið. Þessir gæjar voru að fá allt of mikið borgað, drukku sig undir tölvuborðið um helgar og tóku engum tilmælum yfirleitt.
Ég fæ ekki betur séð en hann bregði hér upp ljóslifandi mynd af gamla vísi.is. Svona var þetta a.m.k. stundum í Þverholtinu. Allir undir borðum og Bakkus við völd.
Já, við erum snjallir Tótarnir:
Enn bætist í tenglasafnið. Eftir að hafa sinnt minni máðarlegu heimsókn inn á pallah Hundapabba, mundi ég eftir Þórarni Þórarinssyni blaðamanni á Samfylkingarblaðinu. Þórarinn er að sjálfsögðu snillingur (þó hann vinni á Samfylkingarblaðinu) og þar sem við þekkjumst, eða réttara sagt þekki ég hann, fer hann rakleiðis inn á listann. Við Þórarinn sátum nefnilega saman í bókmenntafræðinni á sínum tíma. Þórarinn er lóner af guðs náð og því tókust ekki með okkur kynni, en maður veit aldrei hvað gerist.
Annar Þórarinn á að fara inn á listann. Hann er Leifsson og grafíkmaster. Ég hef áður minnst á Tótal hér á síðunni og þarf ekkert að endurtaka það. Hann bætist nú í hóp snillinga.
| 22:10 |