»  off record  »  Það getur allt gerst
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Það getur allt gerst
Mánudagur, 10. febrúar 2003

Lífið er alveg dásamlegt í margbreytileika sínum þegar maður er á tvöföldum skammdegiskammti af prósakki. Veðrið nær ekki að stuða mann og brennivínsleysið er bara nett pirrandi, það er gaman í strætó og vonda kaffið í vinnunnni nær ekki einu sinni að eyðileggja morguninn.
Í dag gerðust þau undur og stórmerki að Múrverjar og Davíð sungu sama sálminn í nánast einum kór. Ármann og Stefán voru að vísu á undan þannig að Doddsson hefur væntanlega verið búinn að lesa Múrinn sinn áður en hann svaraði eldræðunni sem Ingibjörg Sólrún flutti víst með slíkum tilþrifum í Borgarnesinu í gær að sigurvíman er ekki enn runnnin af einhverjum í Samfokinu.

Davíð hefði samt alveg mátt vera kátari eftir að hafa kíkt á Múrinn þar sem það hefur víst verið hægt að ramba þaðan inn á jól.is og þar er verið að telja niður til jólanna og stemningin því bæði angurvær og falleg. Skemmtilegur jólahrekkur múrverjanna fór illa með teljara.is um leið og vaðmálskommarnir fengu ókeypis staðfestingu á því frá TeljaraJens að Múrinn er mikið vinsælli en hægriTíkurnar.


| 21:33 |
komment

Helsti andstæðingur VG virðist vera Ingibjörg Sólrún en ekki Davíð Oddsson. Þarna kemur fram ákveðin symmetría við það sem átti sér stað í síðustu forsetakosningum í US þar sem framboð Ralph Nader tryggði George W. Bush sigur yfir Gore -- sem þeir Stefán og Ármann eflaust fagna mjög um þessar mundir.

Mun fókus VG á Ingibjörgu Sólrúnu stuðla að sigri Davíðs í vor?

Nr. 1 | Organistinn | 11.02.2003 | 0:39:51 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff