»  off record  »  Aldrei kemur Akademían á óvart
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Aldrei kemur Akademían á óvart
Þriðjudagur, 11. febrúar 2003

Óskarsverðlaunatilnefningarnar eru by the book að venju. Chicago er stórlega ofmetin og fær alltof margar tilnefningar. Aukahlutverkin má þó öll réttlæta Queen Laitfah er vel að sinni tilnefningu komin, sem og Zeta-Jones og maður myndi auðvitað ætlast til þess að John C. Reilly myndi taka þetta ef snillingarnir Paul Newman og Christopher Walken væru ekki þarna með honum. Walken er yndislegur í Catch Me If You Can en ef maður á að vera alveg fair þá á Newman að taka þetta. Hann var rosalegur í Road to Perdition.
Skil ekkert hvað er verið að útnefna Renee Zellweger fyrir aðalkvenhlutverk í Chicago, eins gott að Richard Gere fylgdi ekki með líka það hefði verið too much. Ég er skotinn í Sölmu Hayek og Nicole Kidman og vona að þær vinni báðar.
Akademían ætti svo að sýna sóma sinn í að verðlauna leikstjórann Martin Scorsese, löngu tími tilkominn og ef það væri eitthvert réttlæti til í Ameríku (það er það því miður ekki) myndi LOTR: The Two Towers taka bestu myndina. Titanic móralinn bjánalegi bendir hins vegar eindregið til þess að The Hours og Chicago bítist á um allt heila klabbið.


| 19:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff