»  off record  »  Bloggidíblogg
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bloggidíblogg
Laugardagur, 15. febrúar 2003

Eins og tveir af fræknustu og ólíkustu bloggurum landsins hafa bent á í dag gerði ég heilmikla og háfræðilega úttekt á bloggi á síðum Fréttablaðsins í dag.

Ákvað að hafa einn hægri bloggara, einn vinstri, einn harðkjarna og einn öflugan, fyndinn og kjaftforan. Stebbifr var vitaskuld obvious first choice í hægri deildinni. Hann tók erindi mínu af þeirri stöku ljúfmennsku sem birtist í öllum hans skrifum og við lögðum fyrri væringar til hliðar og ræddum málin eins og tveir menn í sitt hvorum landshlutanum. Stebbi má líka eiga það að hann bað ekki um að fá að fara yfir það sem ég hafði eftir honum. Sumir viðmælendurnir vildu það og ég verð nú að viðurkenna það að þessi spéhræðsla hjá fólki sem viðrar þvottinn sinn á Netinu kom mér nokkuð á óvart. Það hefur að vísu komið greinilega í ljós undanfarið að bloggarar leggja það ekki að jöfnu að tjá sig í raunheimum og sýndarveruleikanum sínum. En Stebbi, sem hefði með réttu átt að óttast það mest að ég myndi leggja sér orð í munn, pældi ekkert í þessu. Sé í blaðinu að umbrotsmennirnir hafa þaggað niður í Stefáni í miðju kafi og legg áherslu á að ég hafði ekkert með það að gera.

Totil, nafni minn, var ekki síður hress þegar ég heyrði í honum: "Tóti?, blessaður Tóti hérna." Og stakk upp á því að ég væri orðinn geðveikur eftir þriggja mánaða fyllirí og væri farinn að hringja í sjálfan mig. Hann brást auðvitað ekki væntingum mínum ("Ég vil ekki fá viðtalið til yfirlestrar, er á móti slíkum vinnubrögðum.") og kom með kryddið sem vantaði í þetta. Verð samt að láta þess getið að ég nota aldrei teip enda gamaldags með eindæmum. Segulbönd eru bara til trafala í blaðamennsku og sennilega hefði Tóti ekki verið jafn hress með þetta ef því hefði verið spýtt á prent beint af bandinu.

Reyndi svo auðvitað að vanda mig eins og ég gat með Katrínu enda eru menn búnir að hóta mér því að hún stúti mér á blogginu ef einhverjar rangfærslur er að finna í þessu - því hefur jafnvel verið fleygt að hún stúti mér anyway.

Þór Steinarsson tók að sér að vera fulltrúi vinstri mannanna en mér fannst ómögulegt að vera að draga meintan besta bloggara landsins inn í þessa bloggumræðu eina ferðina enn og ákvað að leyfa Bloggara Dauðans að hvíla í friði. Reyndi þó að fá sorgasögur úr blogginu frá Betu Rokk. Hún var ljúfmennskan uppmáluð en er einfaldlega komin með upp í kok af fjölmiðlaumræðu, fair enough.

Við Salvör töluðum svo mikið og lengi um bloggið að hennar innlegg rann einfaldlega saman við megintextann en þar gat ég heldur ekki stillt mig um að vitna í Mikael Torfason sem missti Dr.Gunna í bloggið. Alltaf gott að sæka ummæli til strigakjafta og þar sem Sverrir Hermannsson hefur ekki, mér vitanlega, tjáð sig um blogg lá beinast við að ganga í smiðju Mikka.


| 15:04 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff