»  off record  »  Borgað í bíó?!!?
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Borgað í bíó?!!?
Sunnudagur, 02. febrúar 2003

Þetta var góð bíóhelgi og ef ég næ að halda mér á þessu tempói mun kvikmyndarýnirninn Tóti væntanlega snúa aftur innan tíðar. Byrjaði á SpyKids2 með dóttur minni og við vorum bara að fíla þetta ágætlega. Steve Buschemi er að þvælast þarna. Hann er alltaf betri en enginn og Banderas er ýktur og svalur.
Þá var komið að ljótu frönsku myndinni Irriversible sem er bara mjög fín. Nauðgunarsenan en löng og ljót og þetta slökkvitækisatriði sem mikið hefur verið skrifað um er auðvitað bara hreinn splatter. Þetta er sem sagt ekki mynd fyrir alla. Taldi samt ekki nema 5 manns sem gengu út af þessari laugardagssýningu klukkan 19.00. Þetta lið í Háskólabíói þarf samt aðeins að hugsa sinn gang - að hafa HLÉ í miðri nauðguninni er auðvitað eins vitlaust og hægt er að hugsa sér. Lauk þessu svo á Catch Me If You Can í kvöld. Áferðarfögur, sótthreinsuð, aðeins of löng mynd. Skemmtileg saga en ekki neitt voða spennandi. En þar sem ég þoli ekki Tom Hanks og er illa við DiCaprio og orðinn þreyttur á Spielberg hlýtur þetta að vera allt í lagi mynd þar sem ég eipaði ekki.
Fór á SpyKids í Smárabíói og stelpurnar þar voru með aditjúd af því að það var kominn fyrsti febrúar og ég er enn með gagnrýnandapassa frá því í fyrra. Þær létu mig borga fyrir miðana og ég er enn í rusli. Rosalega er orðið dýrt í bíó. Stelpurnar í Háskólabíó eru miklu almennilegri og voru ekkert að gera veður út af þessu. Allt best í Vesturbænum.


| 23:02 |
komment

Hvar fær maður svona gagnrýnendapassa. Ég gæti gagnrýnt eins og moðerfokker í Valaskjálf.

Nr. 1 | Þór | 3.02.2003 | 18:55:15 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff