Botninn skrapaður
Sunnudagur, 09. febrúar 2003
Er í vinnunni með eintómum vitleysingum þannig að ég fékk ekki að fylgjast með Silfri Egils (tilgangslaust að linka á síðuna) út af einhverjum andskotans fótboltaleik. Heyrði Egil samt segja frá því á landsfundi rauðhærðra hjá Gísla Marteini í gær að afi hafi haft frumkvæði að því að hann var ráðinn á Tímann sáluga, að sögn Egils til þess að bjarga ungum manni sem var fallinn í iðjuleysi. Annálað góðmenni hann afi minn.
Náði samt smá broti úr Silfrinu í hálfleik þar sem þeir tókust á subburitstjóri Séð&Heyrt og milljónamaðurinn Þorsteinn J. Sá síðarnefndi kann slúðurblaði allra landsmanna litlar þakkir fyrir fréttaflutning af brjáluðum stalker sem ofsækir Maríu Ellingsen. Þorsteinn J. er góður drengur og telur víst að Séð&Heyrt hafi nú náð botni íslenskrar blaðamennsku. Þetta er þó ekki alveg rétt hjá honum þar sem blaðið hefur ekki enn ráðið mig til starfa. Svaraði ekki einu sinni umsókn frá mér einu sinni þó ég sé einn slísíasti blaðamður landsins. Geri ráð fyrir að ég hafi verið over qualified og gert of miklar launakröfur.