»  off record  »  Dagur í lífi ánamaðks
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Dagur í lífi ánamaðks
Miðvikudagur, 19. febrúar 2003

Bjargaði mér frá Guiding Light og frekari leiðindum með því að gleypa hnefafylli af íbúfeni. Leiðindin fóru svo sem ekki langt en ég mætti þó í vinnuna. Hef verið að velta fyrir mér hvernig ég á að farga mér og hallast enn að hengingunni þó einn félagi minn í Táfýluhorninu hafi eindregið hvatt mig til að stökkva.

Á þessum drottins degi árið 1985 kynnti Kóka Kóla Kompaní Cherry Coke ógeðið til sögunnar. Það er hvergi hægt að kaupa í verslunum í Reykjavík núna. Það er hins vegar hægt að kaupa Vanillu Kók enn þá. Einkennileg tilhneiging hjá þessum blóðidrifnu gyðingum að vilja endalaust vera að bragðbæta hinn fullkomna drykk. Það væri þá auðvitað helst gert með rommi, spurning um Bacardi Breezer - Coca Cola?

Kostuleg umræða á kvikmyndir.is um Daredevil. Búningurinn fer eitthvað í taugarnar á sumum en aðrir grípa til varna:

ps.Daredevil er ekki hommalegur
hann er THE MAN WITH OUT FEAR.

Held að DD sé yfirhöfuð ekkert hommalegri en allir hinir búningatöffararnir. Ben Affleck er aftur á móti alveg laus við að vera töff og það hefur ekkert með kynhneigð að gera. Á pappírnum er DD hins vegar með þeim allra svölustu.

Hef frestað drögum að sjálfsmorði þar sem hún Guðrún getur heilað öll mín mein gegn vægu gjaldi (geri ég ráð fyrir. Maður má velja upphæðina sjálfur):

Ég hef ákveðið að byrja at taka gjald fyrir þjónustuna mína.
Ég mun ekki gefa upp neina ákveðna upphæð, svo þíð hafið möguleika að borga mér það sem ykkur þykir samkvæmt fyrir þá þjónust sem ég veiti.

Þegar þið eruð búinn að borga, þá fæ ég e-mail frá PAYPAL.com (nú, ekki Guði?) með nafni ykkar og heimilisfangi sem ég mun nota til að styrkja tengslin við heilunina. Munið að nota leiðbeiningarnar á Heilunara síðunni.

Schnilld! Það er að segja ef Guðrún vikrar betur en þeldökki töfralæknirinn sem Gunnar í Krossinum seldi aðgang að (við réðum upphæðinni að vísu sjálf) í Smáralind. Viðskipti mín við alla þessa kristilegu kuklara minna mig samt alltaf á uppáhalds hryllingsmyndina mína, Angel Heart. Þar segir Séra John eftirfarandi:

I want you to show right now how much you love God! I want you to show as your tithe! I want you to open up your hearts! And open up your wallets! And open up your purses! And give it up! Praise the Lord! Somebody's been talking about me, talking about I've been riding around in a Cadillac! If you love me, and you wanna give to me, then I should be in a Rolls Royce!!

Jamm. Öll vitleysan er eins.

Ánamaðkar allra landa sameinist - gegn Hannesi!


| 21:05 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff