»  off record  »  Ég man þá tíð
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ég man þá tíð
Föstudagur, 28. febrúar 2003

Á þessum degi árið 1986 var Olof Palme, forsætisráðherra Svíaríkis, drepinn. Ég var ekki fæddur þegar JFK var drepinn og flugvélin með Man. United hrapaði þannig að ég man ekki hvar ég var þá. Ég man ekki heldur hvar ég var þegar Selma vann Eurovision næstum því og enn síður man ég hvar ég var staddur þegar Páll Óskar steig sinn hinsta dans. Man ekki einu sinni í hvaða landi það var. Hef sennilega aldrei vitað það. Ég man hins vegar hvar ég var þegar Palme var drepinn. Ég var einn heima í Grenigrund og geri ráð fyrir að það hafi verið laugar- eða sunnudagur, án þess að ég muni það. Að hætti nörda (sem hétu proffar í þá daga) var ég með stillt á Gufuna og heyrði því fréttina.

Ég man ekki hvar ég var þegar geimskutlan sprakk um daginn, held ég hafi verið að keyra í Kópavogi. Man hins vegar hvar ég var þegar ég frétti af árásinni á WTC. Sat með Írisi, þáverandi efnisstjóra á Strikinu og yfirmeðferðarfulltrúa, yfir kaffibolla á Súfistanum. Held ég muni það aðallega af því hún var að segja mér undir rós að ég yrði að fara í meðferð. Dórið hringdi og bullaði eitthvað um að flugvél hefði flogið á annan turninn. Að hætti alvörublaðamanna sagðist ég vera upptekinn og nennti ekki að heyra meira um þetta fríkí flugslys. Hélt svo áfram að hlusta á fyrirlestur um hvernig ég væri að drekka vinnuna frá mér. Hefði betur gert það. Það hefði kostað mig minna en að halda henni.


| 10:15 |
komment

Ég var fullur að bulla um Kirkegaard þennan laugardag sem Palme var drepinn. Charles Bukowsky sat á næsta barstól og sagði "I'm not drunk, I'm only drinking.." Lighten up, Toti !

Nr. 1 | Refurinn Loki | 28.02.2003 | 19:10:17 | [+] |

Yes Toti, after reading this, Loki and Organistinn are getting worried that you may be stumbling and heading for a fall. Remember: alcohol is your enemy.

Organistinn, a lonely janitor working nights, starts morphing into Sy (the photo guy) after seeing this tragic snapshot of Toti's life.

On Monday, take a look around as you exit Frettabladid. I will be sitting there in my parked white Toyota Echo, eating a takeout, svid og rofustappa, from Mulakaffi. As you head towards the bus, Organistinn will be lurking behind, making sure that Toti does not stray.

What else is there for single middle age janitors?

Nr. 2 | organistinn | 1.03.2003 | 9:33:53 | [+] |

28. febrúar árið 1986 var Olof Palme, forsætisráðherra Svíaríkis, drepinn. Ég var ekki fæddur þegar JFK var drepinn og flugvélin með Man. United hrapaði þannig að ég man ekki hvar ég var þá. Ég man ekki heldur hvar ég var þegar Selma vann Eurovision næstum því og enn síður man ég hvar ég var staddur þegar Páll Óskar steig sinn hinsta dans. Man ekki einu sinni í hvaða landi það var. Hef sennilega aldrei vitað það. Ég man hins vegar hvar ég var þegar Palme var drepinn. Ég var einn heima í Grenigrund og geri ráð fyrir að það hafi verið laugar- eða sunnudagur, án þess að ég muni það. Að hætti nörda (sem hétu proffar í þá daga) var ég með stillt á Gufuna og var að rúnka mér í sófanum. Var bara einn heima í pleisinu. Varð svo mikið um við þessi tíðindi að ég missti taktinn í rúnkinu. Hætti því í virðingarskyni við fallinn kratahöfðingja. What Else could I do?

Nr. 3 | Totallý | 4.03.2003 | 14:46:11 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff