»  off record  »  Fyrr myndi ég nú kyssa Vák
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Fyrr myndi ég nú kyssa Vák
Laugardagur, 15. febrúar 2003

Þá er þessi leiðinda Valentínusardagur og helsta framlag Bylgjunnar og Valdísar Gunnnarsdóttur til íslenskrar menningar að baki. Maður getur nú samt huggað sig við að þessi óþverri hefur líka borist út fyrir vetrarbrautina, þannig að við erum ekki alglötuð hérna á Klakanum. Fékk nefnilega póst frá George Lucas með yfirskriftinni:

Love means never having to say: "I´d just as soon kiss a Wookiee!"

Þar bendir hann mér á að ég geti keypt skemmtilegar ástarsögur um eftirlætis Star Wars parið okkar allra; Han og Leiu (and that certain Wookiee). Há ló ken jú gó?

Daredevil var frumsýnd úti á Valentínusardaginn og fær frekar morkna dóma. Hafi það ekki komið fram hérna þá Daredevil últra kúl comix hetja, ekki síst þegar snillingurinn Frank Miller fékk hann til meðferðar og færði okkur hina æðsilegu Elektru. Óttaðist það að vísu að þeir þarna í Hollíwúdd myndu klúðra þessu þegar það fréttist að þessi andskotans aumingi Ben Affleck ætti að leika hetjuna. Hann er viðbjóður sem ekkert getur. Þá virðist rauði búningurinn ekki alveg vera að virka í bíó og það segir sjálfsagt allt sem segja þarf um átfittið og frammistöðu Afflecks að Michael Clarke Duncan sem leikur tröllvaxna glæpaforingjann Kingpin sagðist, hjá Jay Leno, um daginn hafa sprungið úr hlátri í hvert skipti sem hann stóð frammi fyrir Ofurhuganum. Skerý hasarblaðahetja sem fær aðalbófann til að skella upp úr.
Maður lifir samt í voninni um að þetta sleppi fyrir horn og það er synd ef illa skólaðir íslendingar í comix fræðunum fái brenglaða mynd af þessari frábæru hetju í blockbustermynd með ömurlegum leikara.
Alias gellan Jennifer Garner leikur Elektru. Flestir eru hressir með það en ást mín og dýrkun á Elektru allt frá því 1980 og eitthvað gerir það af verkum að ég get eiginlega ekki séð neina leikkonu fyrir mér í hlutverki hennar. Þetta virkaði með Löru Croft og Angelinu en hún getur auðvitað ekki leikið þær báðar.


| 12:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff