Mánudagur, 03. febrúar 2003
Ég hef skrifað um fjölmiðla, aðallega sjónvarp, í Fréttablaðið í nokkra mánuði. Það er ekki heiglum hent að skrifa um sjónvarp þar sem það er svo leiðinlegt og um sumar stöðvar getur maður skrifað minna en aðrar af því þær kosta peninga. Þar sem ég er jafnaðarmaður í hjarta mínu leiðrétti ég þetta misræmi með því að horfa ekki á neina stöð og skrifa svo um það sem ég heyri fólk tala um í strætó og á förnum vegi. Nú hefur komist upp um mig og því ekki um annað að ræða en að hætta að skrifa um sjónvarp eða byrja að glápa.
Ég er að vísu ekki tilbúinn til að viðurkenna það að það sem ég skrifa sé "rakalaust bull" þó ég hafi ekki alltaf séð þættina sem eru til umfjöllunnar en ef svo er hugga ég mig a.m.k. við það að stíllinn er helvíti góður og umbúðirnar skipta nú ekki minna máli en innihaldið, right?