»  off record  »  Sikileyjarvörn á Óðali
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sikileyjarvörn á Óðali
Föstudagur, 28. febrúar 2003

Slísí blaðamaðurinn fór í leðurjakkann í kvöld og ætlaði að ná sér í slúður.
Byrjaði á lokahófi Hróksins, heilsaði upp á Krumma og horfði á Kortsnoj éta pinnamat. Tjattaði aðeins við Reyni Trausta sem var alveg afslappaður enda ekki að leita að slúðri. Það fór vel á með þeim Þórólfi borgarstjóra og Björgólfi aðalmanni. Haraldur Blöndal átti eitthvað vantalað við Sókóloff og var greinilega að hita sig upp í hressilegt kvöld. Stofnfélagi Hróksins og vopnabróðir minn Jakob Bjarnar lét sig vanta en nafni hans Magnússon var drjúgur með sig að vanda. Stórfrændi minn Guðmundur G. Þórarinsson stóð sig vel í gestgjafahlutverkinu og allt fór þetta svo vel fram að slúðrin urðu engin.
Brá mér þess vegna í hlutverk eiganda BadaBing.is og kíkti við hjá félögum mínum á Óðali sem voru með Rómarkvöld, þannig að stelpurnar voru allar í hvítum kirtlum og reyndu af veikum mætti að fá trega gesti til að kaupa handa sér í glas og kíkja upp í "paradise".

Og nú kemur úttekt á stöðu einkadansmála í breyttu umhverfi. Þeir á Óðali eru hvergi bangnir og ætla að halda þessu áfram. Stelpurnar á sviðinu eru hættar að fara úr nærbuxunum og uppi í einkadansi er allt að mestu leyti óbreytt nema að tjöldin eru ekki dregin alveg fyrir (þeir sem vilja mest privacy fara því í innsta klefann). Það fer því ekkert fram í lokuðu rými og löggan getur valsað um að vild og fylgst með. (Þeir fara kannski bráðum að fatta að vændið er á Netinu en ekki í einkadansinum).
Stelpurnar eru sem fyrr flestar frá Slóvakiu og Búlgaríu og hvað þessi lönd heita nú öll. Þarna var líka ein íslensk sem var á sínu fyrsta kvöldi og var klár á því að þetta væri betra en að vinna í sjoppu fyrir 70 þúsund kall á mánuði. Gangi henni allt í haginn. Ég vann einu sinni með einni nafntogaðri á Vegas sem sá, einhverra hluta vegna, ekki ástæðu til að hætta á bensínstöðinni þrátt fyrir kvöldvinnuna.
Þeir á Óðal báru sig illa undan fjölmiðlaumræðunni sem þeir segja alla vera á þeim nótum að það sé búið að loka. Kúnnarnir eru því aðallega útlendingar. Það var a.m.k. þannig í kvöld fyrir utan nokkra leppalúða, þrjá blaðamenn og einn prest.
Þar sem mér var gefið kaffi þarna þá ætla ég að vera svo huggulegur að leiðrétta þennann misskiling og árétta að það er alltaf opið á Óðali og það verður það að öllum líkindum eitthvað áfram.
Þetta hefur sem sagt breyst afskaplega lítið síðan ég blowaði jólabónusinum þarna árið 2000 (gott ef verðskráin er ekki sú sama) þrátt fyrir R listann, Stefán Jón, úrskurð héraðsdóms, Hæstaréttar og hremmingar í Kópavogi. Þetta á samt djöfull langt í land með að ná standardinum á BadaBing! En þetta er á meðan er. Þeir verða samt aðeins að hugsa sinn gang þarna á Óðali. Bjóða fréttamönnum á staðinn og bjóða bara upp á kaffi (og einn bjór). Maður hefði nú haldið að það væri þeim í hag að bjóða upp á grand tour og faglegri úttekt á þjónustunni bak við hálflukt tjöldin.


| 0:03 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff