»  off record  »  Striker strikes out
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Striker strikes out
Þriðjudagur, 04. febrúar 2003

Það er þetta með hann Eið. Það er margt við þessa furðufrétt Sunday Mirror að athuga en mér finnst svolítið undarlegt að enginn nema minn gamli miðill skuli þora/vilja/sjá ástæðu til að hreyfa við þessu viðkvæma máli.
Ég hef að vísu heyrt það úr einhverjum hring, veit ekki hversu innarlegum, að "fréttin" sé rætin moðsuða sem tjallarnir hafi bruggað eftir illa fengnum uppskriftum. Það er náttúrlega ferlegt að lenda í þessu en þar sem the bug is out there og grasserar á gelgjuvefjunum Tilverunni og Batman og gengur manna í millum með tölvuposti og yfir kaffi og sígarettum er varla hægt að láta eins og ekkert sé.
Vinklarnir eru margir á þessu og ekki útilokað að Osk Norfjoro sé líka fórnarlamb í þessu, enda úthrópuð sem rætin tík þessa dagana, ef um hráskinnaleik bresku hlandpressunnar er að ræða.
Það sem grefur þó fyrst og fremst undan trúverðugleika meintrar fréttar er að Fjölnir Þorgeirsson er sagður vera dansari. Fjölnir er frægur fyrir íslandsmet í íslandsmetum í hinum ólíklegustu greinum en mér vitanlega hefur hann aldrei verið bendalaður við dans - ekki einu sinni breikdans og þar sem Ísmaðurinn var nokkuð milli tannanna á bresku pressunni á þeim tíma sem allt lék í lyndi hjá honum og Ógnarkryddinu getur það ekki verið vandaður né áreiðanlegur blaðamaður sem stendur að baki þessari ítarlegu og stórundarlegu úttekt á blessuðum drengnum.


| 21:01 |
komment

Er nokkuð að gera nema hringja í strákinn og fá þetta á hreint? Hvað var það annars sem blaðamenn gera í vinnunni?

Nr. 1 | Þór | 4.02.2003 | 22:29:47 | [+] |

Það er auðvitað ekkert flóknara en svo en er það nú samt og blaðamenn gera alveg hreint ótrúlega hluti, og gera ekki aðra enn ótrúlegri hluti, í vinnunni. Annars þurfum við ekkert að vera að hafa of miklar áhyggjur Séð&Heyrt verður með þetta allt á hreinu á morgun. Það er líklega snyrtilegast að vera ekki að rugla reitum fjölmiðlanna of mikið saman, anyway þetta er dæmigert Séð&Heyrt mál, er best geymt þar og verður til lykta leitt þar að öllu óbreyttu.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 4.02.2003 | 22:38:46 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff