»  off record  »  Svartur dagur
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Svartur dagur
Miðvikudagur, 26. febrúar 2003

Ungur og efnilegur kverúlant hefur verið að hreyta ónotum í rjómann af ungliðahreyfingu vaðmálskomma á Múrnum fyrir það að kunna ekki að velja raunverulega merkisðviðburði úr heimssögunni í liðnum "Á þessum degi..". Í dag greinir Múrinn til dæmis frá því að á "þessum degi árið 1986 tók Corazon Aquino við völdum á Filippseyjum eftir fall Ferdinands Marcos."
Þarna bregst sagnfróðum Múrverjunum bogalistinn enn eina ferðina en annar, merkilegri og öllu skuggalegri hlutur gerðist á þessum degi árið 1953. Þá kom í heiminn söngvarinn Michael Bolton þannig að 26. febrúar er einn svartasti dagur í sögu tónlistarinnar.
Þá fer þessi dagur illa af stað hjá sjálfum mér árið 2003 en ég vaknaði við það að Flosi Eiríksson og félagar hans í Forræðishyggjufylkingunni í Kópavogi hafi fengið það í gegn í gær að einkadans yrði bannaður í partasöluhverfi bæjarins. Aumingja Gunnar Birgisson lagði ekki einu sinni í að mæta og verja stripplið. Þetta er helvíti hart og BadaBing! harmar það að íslenskum minnipokamönnum skuli vera settur stólinn svona harkalega fyrir dyrnar í klám- og rúnkmálum. Hvert eiga þessi grey núna að leita?

Sjálfur bjó ég í Kópavogi í tæp 10 ár og tel ekki á neitt skítapleis í landinu hallað þó fullyrt sé að Kópavogur sé eitt það ömurlegasta bæli á þessu morkna landi. Kópavogur hafði þarna gullið tækifæri til þess að hefja sig yfir pervisinn
Reykjavíkurlistann og gera bæinn að hálfgildings heimsborg með því að leyfa lappdans í skuggalegu iðnaðrhverfinu. Sá draumur er úti.
Það birti aðeins til þegar ég opnaði tölvupóstinn og sá þar boðskort: "Við á Óðali viljum bjóða þér og þínum félögum að koma og þiggja drykk og léttar veitingar hjá okkur á fimmtudaginn 27.mars. Húsið opnar kl: 21.00.

Fimmtudagskvöldið verður engu líkt.
Ekki missa af frábærri skemmtun.
Þér er boðið að koma og fá þér drykk
og upplifa þig sem keisara Rómarveldis!
"


Talandi um Svartan dag í sögu tónlistar. Í dag munu þau boð út ganga að Skítamórall sé að byrja aftur. Klukkan er ekki orðinn 10 og það er búið að banna einkadans og Skímó er að snúa aftur. Getur þessi dagur orðið verri?
Óþolandi með þessa innantómu poppara. Þeir eru alltaf að lofa að hætta en snúa svo alltaf aftur innan árs. Hvort græða menn meira á kveðjutónleikaherferð eða kombökkum?


| 9:17 |
komment

Eg tok eftir thvi ad einn lopapeysubloggarinn (Thor) kennir thig vid midjumod. Er eitthvad til i thessu hja honum?

Kvedjur,
Organistinn

Nr. 1 | organistinn | 27.02.2003 | 6:30:21 | [+] |

Hádí Organisti,

ég var búinn að sjá þetta. Nú veit ég ekki við hvaða reglustikur Þór notast en finnst nú miðjumoð ekki fallegt orð. Kannski er það framsóknarlitningurinn sem setur mig á miðjuna. Annars er ég alltaf meðvitað að reyna að vera ólíkindatól sem ekki er hægt að flokka hægri vinstri. Tek þessa flokkun samt síður en svo nærri mér enda eru mestu töffararnir með mér í miðjumoðinu. Kann vel við mig innan um Tóta Leifs, Dr. Gunna og Fréttir.com.

Annars var ég vinstri maður þangað til í gær.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 27.02.2003 | 8:21:03 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff