Þriðjudagur, 04. febrúar 2003
Organistinn dregur Hafið inn í umræðuna í commentunum en ég get varla tekið þátt í henni.
Jamm það er best að ég játi það bara - ég hef ekki nennt að sjá myndina. Hef að vísu trú á því að hún sé hin besta skemmtun en þar sem annar maður tók að sér að skrifa um hana í Fbl. hefur ekkert rekið á eftir mér. Íslenskar kvikmyndir gera það sjaldnast.
Ég get hins vegar stytt Organistanum stundir með því að fræða hann um hvað Kristni Snæland, leigubílstjora, finnst um þetta meistaraverk Baltasars. Kristinn hefur skoðanir á nánast öllu milli himins og jarðar, eins og gengur og gerist með bílstjóra og annað fólk, og í blaði sínu Taxa-Tíðindum hefur hann meðal annars þetta að segja:
Nýlega sá ég kvikmyndina Hafið þá sýningu sorans og afskræmingu mannlegs samfélags. M.a. má velta fyrir sér í hverju það er fólgið í myndinni sem innlegg í umræðu um kvótaruglið, að sýna tengdadóttur útgerðarmannsins sjúga besefann á eiginmanninum eða hvort hugsanleg afskipti lögreglu af aðstandendum myndarinnar réttlæta það að svívirða lögreglumenn með því að gera lögregluþjóninn í myndinni að argasta fífli og gefa jafnvel í skyn að hann kynni að geta hugsað sér samfarir við sauðkind. Skömmu síðar sá ég svo Bílaverkstæði Badda, aðra mynd um skít, eymd og volæði. Var mér þá öllum lokið, væri virkilega ekkert til fyrir sjónum þeirra sem kalla sig íslenska listamenn en sori, skýtur og eymd? Mest öll þjóðin lofar og upphefur þessi verk listamannanna sem ég vildi fremur kalla skítadreifara þjóðarinnar.
Jamms, kæri Organisti, hvað segirðu við þessu?
Sjálfur er ég þannig gerður að ég sá það að loknum pistlinum að ég get ekki látið Hafið bíða öllu lengur. Kristinn sagði mér í hressilegu spjalli um daginn að samfaratilburðir þeir sem sýndir væru í Land Rovernum í myndinni væru einnig alveg út í hött. Það væri vissulega hægt að ríða í Land Rover en ekki svona með rassinn upp um topplúguna. Þá vita það líka allir sem kunna á kynlíf að það er ekki hægt að geraða í sundi á meðan maður treður marvaðann.
Meiri snilld úr Taxa-Tíðindum:
Tjöruhausar
Að undanförnu hefur að vetrarvenju borið mjög á því að tjara settist á kústhausana á þvottaplönum. Starfsmenn þeirra eru oftast afar þægilegir að skipta um þá og láta hreina hausa í staðinn.
ATH.
Þeir sem reykja og bera því tjöruhausa á herðunum geta ekki fengið þeim skipt á bensínstöðvunum.
svo mörg voru þau orð