»  off record  »  Tóti Tímalausi
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Tóti Tímalausi
Sunnudagur, 23. febrúar 2003

Alltaf eru nú þessir framsóknarmenn jafn klikk. Held þeir ættu að renna aðeins í gegnum The Art of War eftir Sun-Tzu. Sú bók hefur gagnast alvöru plotturum á borð við Tóný Sópranó vel og sjálfsagt er Alfreð Þorsteinsson með hana undir koddanum. Hann ætti þá að lána Palla Pedersen, Dóra formanni og Guðna gúrku skrudduna. Þetta offar og grímulausa hatur í garð Ingibjargar Sólrúnar ber herkænsku þeirra dapurlegan vott. Þetta á allt eftir að koma í bakið á þeim. Náttúrulega alveg galið að láta konuna stuða sig svona. Þeir gera ekkert annað en hlaða undir hana og treysta hana í sessi sem female Terminatorinn sem mun ganga milli bols og höfuðs á stjórninni. Sýnir best hvað þessi bægslagangur er orðinn galinn þegar þeir keppast við að mæta í 70 mínútur Steingrímur J. og Össur og reyna. eins og litli bróðir orðar það, "að toppa einhverja kerlingu með því að pína ógeðsdrykk ofan í sig".

Annars ætlaði ég að böggast út í framsóknarmenn. Þeir halda úti tveimur ljótum og leiðinlegum vefsíðum, hriflu.is og
maddaman.is. Báðar sækja þær nöfn sín í fornfræga sögu flokksins en eins og hvert mannsbarn veit var Jónas stofnandi hans kenndur við Hriflu og Halldór Laxness gerði svo Rauðsmýrarmaddömuna í Sjálfstæðu fólki að málpípu Jónasar og samvinnuhreyfingarinnar.
Nú hefur framsókn opnað enn einn vefinn, sem fyrr er vísað í forna frægð, og nú er það gamla málgagnið Tíminn sem gengur í endurnýjun lífdaga. Já, Framsóknarflokkurinn er farinn að gefa Tímann út að nýju með viðhenginu .is. Það er svo sem ekkert nema gott um það að segja svo lengi sem þeir fylgja þessu ekki eftir með
NT.is. Skil samt ekki afhverju mér var ekki boðin ritstjórastaðan þar sme afi ritstýrði gamla Tímanum í tæp 50 ár.
Kannski á Tíminn.is bara að vera eins og hann er tómur og innihaldslaus og þá hef ég auðvitað hvort eð er ekkert að
gera þar. Held að þetta sé fyrsta vefritið sem ég sé opnað með pompi og prakt án þess að haft sé fyrir því að hafa eitthvert innihald á boðstólnum fyrir væntanlega lesendur. En framsóknarmenn standa ekki framarlega í netmálum,
eins og þegar hefur komið fram.

Það hefði nú samt mátt bjóða manni í opnunarteitið. Held hreinlega að ég hafi aldrei fengið frítt í staupinu hjá framsókn. Afi var Tíma Tóti en ég ber nafnið Tóti Tímalausi með rentu.


| 18:51 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff