Þriðjudagur, 11. febrúar 2003
Ég fór að fikta í kóðanum á Badabing! í gær og er langt kominn með að eyðileggja síðuna. Kann nefnilega ekkert á þetta. Tilgangurinn var samt göfugur en ég ákvað að moka alls konar smáborgararusli á borð við leit.is, símaskránna, vísi.is og mbl.is úr tenglasafninu. Tók svo nokkra nýja töffara inn í staðinn.
anna.is er enn efst á blaði enda bæði konanmín og hönnuður þessarar síðu og því eins gott að hafa hana góða ef ég á að fá hana til að laga skemmdarverkin eftir sjálfan mig.
Laugurinn sjálfur, einnig þekktur sem Gunnlaugur Lárusson, er uppáhaldsfyrrverandivinnufélagi minn í öllum heiminum og algjört möst að hafa hann með. Líka um að gera að linka á Gulla áður en maður verður sakaður um að neimdroppa en hann er nefnilega að fara að meikaða með Brain Police. Voru í Mannlífi um daginn og því munum við væntanlega sjá þá á forsíðu Rolling Stone innan tíðar.
Nafni minn Hugleikur Dagsson er byrjaður að bulla á netinu og full ástæða til þess að fylgjast grannt með honum. Hann er auðvitað fyrirmyndarbíókrítíker, teiknimyndasögugúru andskotans, fyrrum leigupenni á Strikinu og ex-ið hennar Júlíu mágkonu. Góður drengur og glaður hann Hulli.
Ég hef áður hrósað öðrum nafna mínum og fyrrum þjáningabróður á vísi.is, Tóta Leifs, hérna og auðvitað fyrir lifandis löngu tími til kominn að linka á Totil.com.
Ég er ekki viss um að ég kunni mannganginn en Hrafn skráði mig engu að síður í þetta frábæra skákfélag sem hann er í forsæti fyrir. Ég kannast við nöfnin Karpov og Tal og það nægir mér til að hafa gaman af því að fylgjast með hinum geysiöfluga Hrók.
Jónas Tryggvi Svanfríðarson var alveg ómissandi í tölvunördabransanum á Strikinu. Drengurinn er eðal jafnaðarmaður og glaðværðin uppmáluð en það er samt svolítið stressandi að fylgjast með honum í peningavandræðum og tungumálaörðugleikum í Tékkó.
Internet Movie Database fær að halda sér. Nota hann ótrúlega mikið þó ég eigi auðvitað að kunna þetta allt.
Baggalútur. Það segir sig sjálft.
Fyrrverandi ritstjóri minn til afar skamms tíma Jónas Kristjánsson er enn skemmtilegur penni og yndislega ósvífinn á köflum þannig að það borgar sig að droppa inn hjá honum endrum og eins. Líka ágætt að láta einhvern pikka út fyrir sig áhugaverða punkta úr heimspressunni. Mestur fengur er þó sjálfsagt í leiðarasafni Jónasar sem hefur meira að segja komið af stað milliríkjadeilu með reiðilestrum sínum.
Hvað Múrinn varðar hef ég engar afsakanir (vona að þeir sem hneykslast noti þetta ekki mikið gegn mér, en ef svo er then fuck them and fuck you too). Hann er bara einfaldlega best skrifaða og að sjálfsögðu gáfaðasta pólitíska vefritið í þeirri ládeyðu sem ríkir á vefnum. Svo er bara best að játa það að menningarrýni systkinanna Ármanns og Katrínar er (oftast) eðalstöff.