Mánudagur, 17. mars 2003
Það ætlar ekki að ganga þrautalaust að sjá Lilyu 4-Ever. Þorði ekki öðru en að skella mér í Sambíóið við Hagatorg klukkan 22.30 í gærkvöld, eftir 10 tíma sunnudagsvakt. Það var uppselt þannig að það hefði verið bloody ironic ef þetta hefði verið síðasta sýningin. Markaðsmenninrir hafa hins vegar látið undan þrýstingi okkar og ég frétti að búið væri að festa kaup á myndinni og hún verður sýnd eitthvað áfram. Spurning að taka Sópranós upp á eftir og drífa sig. Verð örugglega að sjá Maid in Manhattan á morgun. Ekki má láta Lopez bíða lengi eftir krítík, right?
Jæja, minnihluti heimsbyggðarinnar fær stríðið sitt langþráða á næstu dögum. Fáránlegt þetta moment of truth bull í Bush. Skrifar handritshöfundur Independence Day (I saw...its thoughts. I saw what they're planning to do. They're like locusts. They're moving from planet to planet...their whole civilization. After they've consumed every natural resource they move on...and we're next. Nuke 'em. Let's nuke the bastards) ræðurnar hans?
Pabbi gaf mér skemmtilegt plaggat í gamla daga. Það var prentað af einhverri herstöðvaandstæðingakommasellunni og þar var búið að splæsa Ronald Reagan og Margaret Tatcher inn í hlutverk Clark Gable og Vivien Leigh í Gone With the Wind plaggatinu. Þessi bíómynd kommanna hét vitaskuld á Hverfanda hveli eða eitthvað í þá áttina. "Hún lofaði að fylgja honum á heimsenda. Hann lofaði að vísa veginn." Og Tatcher mændi ástaraugum á Ronbo. Gott ef myndin var ekki sögð framleidd af Árvakri og leikstýrt af Geir Bielderberg? Þetta var fyndið plaggat. Hvernig fór áráttusafnari eins og ég að því að týna því? (Einhvern veginn hurfu nú DuranDuran plaggötin líka).
Á þessum árum var maður alltaf jafn hissa þegar maður vaknaði og The Day After var ekki runninn upp. Það var eitthvað svo eðlilegt að þessi skötuhjú myndu steypa öllu í glötun.
Svo róaðist þetta allt saman og maður gerðist svo vitlaus að þora að fjölga mannkyninu á meðan fyllibyttan var í Moskvu og kvennabósinn í Washington. Það virtist öllu vera óhætt enda eru drykkjurútar og graðnaglar upp til hópa gott fólk. Það eru Texasbúar yfirleitt ekki og Verkamannaflokksleiðtogar sem fylgja þeim að málum ættu að skammast sín. Skora á Stefán Pálsson og félaga í SHA að endurprenta gamla veggspjaldið mitt. Bush leysir Reagan af og Blair fer í kjólinn hennar Tatcher. Það er kominn tími á eitt svona poster fyrir 21. öldina og ekkert að því tjá ástarsamband tveggja karla. Það er ferlega modern enda samkynhenigð ekkert tabú lengur og hinseginfræðin í miklum blóma.
Við Davíð og Halldór segi ég nú ekkert. Minni bara á það sem Zhírínovskí sagði einu sinni við Íslendinga þegar Jón Baldvin var að gera sig breiðan í Eystrasaltsríkjunum. "Þið eigið ekki einn skriðdreka og ekki einu sinni kafbát. Þið ættuð að halda kjafti."