»  off record  »  Aðgengilegt almenningi: Trúnaðarmál
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Aðgengilegt almenningi: Trúnaðarmál
Þriðjudagur, 25. mars 2003

Einhver bloggpían er að eipa af því EIR hafði það eftir bloggsíðunni hennar (þar er nú kominn þessi fíni disclaimer um að ekki megi vitna í síðuna án samþykkis bloggara. Tek samt sénsinn og linka á hana) að Chelsea Clinton hefði fengið synjun hjá henni í Pennanum-Eymundsson enda á hún víst á hættu að missa vinnuna. Er það út af því að EIR hringdi í hana eða af því að hún kjaftaði frá því á Netinu að viðskiptavinur PE fékk synjun á greiðslukorti?

Nú vill fólk sjálfsagt kaupa sér klámblöð, mjólk, hleðslutæki, millistykki, skrúfjárn, brennivín og hass án þess að eiga það á hættu að það verði fréttamál. Hvað þá ef maður lendir svo í þeirri pínlegu aðstöðu að geta ekki greitt fyrir stöffið. Spurning hvort verslanir, olíufélög, ÁTVR, bókabúðir og aðrir dílerar verði ekki að setja það í siðareglur starfsmanna hverju þeir megi slúðra, bæði í saumaklúbbum, heitu pottunum og á Netinu (Það er faktískt frétt í sjálfu sér að einkalífi þekktra einstaklinga standi ógn af tjáningarþörf ósýnilega fólksins sem flytur greinargóðar fréttir af öllu sem á daga þess drífur á Netinu).
Starfsfólk í heilbrigðisþjónsustu er bundið þagnarskyldu og fer líklega ekki að blogga um brjóstastækkanir, umskurði, ilsig og æxli? Ef einhver læknir tæki sig hins vegar til og bloggaði um að hann hafi lagað eyrun á Toný Blair er ég ansi hræddur um að blaðamenn færu á stúfana og könnuðu málið. Why the hell not?
Sjálfur las ég þessa Chelsea frétt hjá annarri bloggellu. Finn enga disclaimera hjá henni og gef henni því orðið:

vá...chelsea clinton kom í búðina. æsa afgreiddi hana og hló æðislega að henni því hún var ekki með inneign á kortinu sínu. svo fattaði hún að mastersgráðurríkisbubbinn stígur ekkert sérstaklega í vitið því hún var að leita að rafmagnsklóm inní bókabúð. ýkt heimsk...

Alveg fyrirmyndarfrétt enda Beta löngu búin að sýna það og sanna að hún er með nef fyrir slíku.


| 23:10 |
komment

Heimskt kvenfólk. Aldrei framar skal ég versla í þessari bókaverslun, mér er skapi næst að skila Hringadróttinssögukassanum sem ég keypti þarna fyrir jólin. Fyrir utan það að selja ekki millistykki, því lík háðung. Hver vill svosem eiga á hættu að afgreiðslufólkið upplýsi alheim um allt sem manni vanhagaði um? Neibb, Penninn-Eymundsson keðjan er komin á sama trakk og DV, chapter 11 ahead!!!

Nr. 1 | AlanHudson | 26.03.2003 | 0:26:34 | [+] |

Já! Guð minn góður.. hún gerði mistök að segja þetta á blggnum sínum!.. best vera þá drullusokkur og segja frá því í fréttablaðinu?.. því það er það rétta ?..

Ég ætla alltaf að versla þarna.. og í leiðinni ætla ég að halda minni skoðun á Eiríki, hún getur hvort sem er ekki versnað neitt mikið.

Hvernig væri að senda hann bara yfir á Séð&Heyrt, maðurinn á ekki heima neinstaðar annarstaðar, og leyfa fréttablaðinu að halda áfram í þá átt að verða besta blaðið ?.. eða senda hann bara yfir á DV, sem er enþá verri snepill en S&H

Nr. 2 | Jónas | 26.03.2003 | 10:18:52 | [+] |

Daman er ágæt hún þarf bara að finna sér nýja vinnu. T.d. bókarastaða hjá Sjálfstæðisflokknum væri hentug. Það vantar blogg um fjármál viðskiptavinanna þar!!!

Nr. 3 | AlanHudson | 26.03.2003 | 22:10:05 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff