»  off record  »  Benefits of a classical education
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Benefits of a classical education
Föstudagur, 28. mars 2003

Sé það á mbl.is MR vann Éttu Pétur eina ferðina enn. Datt einhverjum eitthvað annað í hug? Sá smá brot af þessu á meðan ég var að bíða eftir The Osbournes og botna ekkert í því hvernig nokkur sem er vaxinn upp úr menntaskóla nennir að horfa á þetta. MR-ingar voru hálf taugaveiklaðir enda pressan mikil. Það hlýtur að boða heimsendi ef lið timburkofans við Tjörnina tapar þessu úr því sem komið er. Hættan var þó engin enda gat þetta MS-lið í besta falli ekki neitt. Sæt stelpa samt. Skemmtileg tilbreyting og til eftirbreytni. Þrátt fyrir sigurinn ættu MR-ingarnir að hengja sig. Að fokka upp Pilti og Stúlku og draga sýrutrippið Mann og konu inn í þetta. Við þessu liggur sama dauðarefsingin og að rugla saman Afródítu og Aþenu.
Konanmín er droppát úr MS og hélt með þeim. Ég er droppát úr MR og hélt með honum af gömlum vana (þessi skóli hefur auðvitað ekki verið worth shit eftir að Guðni hætti). Koxaði á stærðfræðinni og Hitlersæskumóralnum þarna á sínum tíma, en engu að síður góður skóli og allt það og skilar jafn miklu magni af dópistum og fyllibyttum út í samfélagið og aðrar menntastofnanir á þessu stigi.
Dvölin í MR gagnaðist mér samt ágætlega. Ég get enn gaulað Lorelei þegar ég er fullur og langar að tala útlensku og ég þurfti hvorki að opna bók né augun í eitt ár eftir að ég flutti mig yfir í hornstein menningarbæarins Kópavogs, MK. Ástæðan var einföld: Benefits of classical education, eða eins og Hans Gruber, vondi kallinn í Die Hard, orðaði það: "When Alexander saw the breadth of his domain, he wept for there were no more worlds to conquer." The benefits of a classical education.
Vona að MR-ingar geri þessi orð að mínum í nótt áður en þeir detta ofan í tjörnina spangólandi Ó Alte Búrsjennherlíkheit wóhinn bizt dú erswúndenn.


| 21:40 |
komment

"Nie kehrst Du wieder, goldne Zeit,
so froh und ungebunden!"

It´s playback time hjá Tóta í dag!

Nr. 1 | Refurinn Loki | 28.03.2003 | 21:54:30 | [+] |

Jamms, nú verður allt látið vaða. Auf Deutsch und alles.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 28.03.2003 | 21:57:02 | [+] |

„Ich spräche ziemlich gut Deutsch.“

Hvenær ætli fyrsti íslenski raunveruleikaþátturinn komi svo þú sleppir við Survivor og Osbournes?

Nr. 3 | Refurinn Loki | 28.03.2003 | 22:11:00 | [+] |

Hvenær kemur fyrsti (raun)veruleikaþátturinn? Hann er kominn, fyrsta serían heitir "landsfundur Sjálfgræðisflokksins"!!!

Nr. 4 | AlanHudson | 29.03.2003 | 4:12:32 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff